Hlín - 01.01.1954, Blaðsíða 15
Hlín
13
Þessar tillögur voru samþykktar á fundinum:
1. Fundur Sambands norðlenskra kvenna, haldinn á
Akureyri dagana 1.—4. júlí 1954, harmar það að feld
skyldi vera á Alþingi tillaga um að Húsmæðrakennara-
skóli íslands yrði fluttur og fengi aðsetur í Húsmæðra-
skóla Akureyrar. — Þareð kunnugt er, að Húsmæðrakenn-
araskóli íslands er enn húsnæðislaus, endurtekur S. N. K.
tillögu sína frá fyrra ári og skorar á ríkisstjórnina að láta
hana koma til framkvæmda þegar á þessu hausti, með því
að ákveða skólanum stað í Húsmæðraskóla Akureyrar.
2. Fundur Sambands norðlenskra kvenna, haldinn á
Akureyri dagana 1,—4. júlímánaðar, átelur harðlega
þann ósið og eftiröpun á erlendum háttum, sem fram hef-
ur komið í því að taka upp fegurðarsamkeppni meðal
ungra stúlkna hjerlendis. — Lítur fundurinn svo á, að
ekki beri að verðlauna meðfædda fegurð, heldur það eitt,
sem áunnist hefur fyrir ástundun, þjálfun og dygð. Enn-
fremur telur fundurinn að það sje niðurlæging fyrir kon-
una að vera leidd til sýningar og mats eins og ambáttir
þrælasölu fyrri daga. — Skorar fundurinn á allar íslenskar,
ungar stúlkur að neita með öllu að taka þátt í slíkum
skrípaleik.
3. Fundur S. N. K., haldinn á Akureyri dagana 1,—4.
júlímánaðar 1954, mótmælir þeirri stefnu, sem allmikið
hefur borið á hjerlendis síðastliðin ár, að láta matvæli
safnast fyrir, eyðileggjast eða skemmast fremur en að
lækka verð þeirra. — Fundurinn lítur svo á, að aukin sala
myndi bæta upp lækkað verð, og skorar því á Framleiðslu-
ráð landbúnaðarins og neytendasamtökin í landinu að
koma sjer saman um skynsamlegar leiðir til úrbóta í
þessum efnum.
4. Fundur S. N. K., haldinn á Akureyri dagana 1.—4.
júlímánaðar 1954, lýsir ánægju sinni yfir hinum ágætu
útvarpserindum Gísla alþingismanns Jónssonar, og flytur
honum fylstu þakkir fyrir. — Jafnframt skorar fundurinn
á ríkisstjórnina að hrinda hið allra fyrsta í framkvæmd