Hlín - 01.01.1954, Blaðsíða 112
110
Hlin
árum fyrir stofnun S. A. K. hafði komist hreyfing á það
mál hjer eystra að stofna Kvennaskóla á Austurlandi, og
fjársöfnun hafin í því skyni. Fjárupphæð sú var árið 1927
5—6000 kr. og var það fje í vörslum sýslumannsins á F.ski-
firði. — Nú skyldi Kvennasambandið bindast samtökum
við Búnaðarsamband Austurlands um að hrinda máli
þessu í framkvæmd, og var staðsetning skólans, af Sam-
bandsins hálfu, þegar á fyrsta fundi þess, bundin við Hall-
ormsstað.
(Samvinna við Búnaðarsambandið ákveðin á undirbúnings-
fundinum árinu áður, þá kjarin nefnd innan Sambandsins til
þeirrar samvinnu.)
Arangurinn af samvinnu þessara aðila, sem tóku hönd-
um saman við framtakssama og stórhuga ríkisstjórn á
sviði mentamála, varð sá, að skólinn var risinn af grunni
árið 1930, og fyrsta starfsár skólans var 1930—31.
Sambandið tók þátt í fjársöfnun þeirri, er fram fór hjer
eystra, og átti samkvæmt þágildandi lögum að vera helm-
ingur kostnaðarverðs skólabyggingarinnar.
Sambandið lagði á það mikla áhérslu, að innbú skólans
yrði af íslenskum toga spunnið alt frá rótum, og að starfs-
tilhögun öll, einnig hvað námið snerti, yrði sem traustust
og þjóðlegust. — Forustuna í máli þessu, innan sambands-
ins, hafði fyrsta forstöðukona Húsmæðraskólans á Hall-
ormsstað, Sigrún P. Blöndal. — Það er tæplega ofmælt, að
hún hafi verið þar lífið og sálin, sem og í öllum þeim að-
almálum öðrum, sem Sambandið tók á arma sína, allan
jrann tíma, er það naut hennar sem formanns síns, en það
var þann tíma allan, sem hún lifði hjer á jörð. — Þetta er
hjer í eitt skilti fyrir öll fram tekið. — Það kastar engri
rýrð á aðrar ágætar konur, er við hlið hennar stóðu, en
þar má fyrsta til nefna Margrjeti Pjetursdóttur á Egils-
stöðum, er með frú Sigrúnu starfaði í stjórn Sambandsins
til dauðadags, svo og Guðrúnu Gísladóttur, Seyðisfirði,
sem átt hefur sæti í varastjórn alt frá stofnun Sambandsins
og til þessa dags.