Hlín - 01.01.1954, Blaðsíða 63
Hlin
61
Jeg varð samferða um haustið Margrjeti Sigurðardótt-
ur frá Sæunnarstöðum í Hallárdal, hún kendi fatasaum
við skólann, en fór vestur í Skarðsstöð að finna Boga bróð-
ur sinn, sem stýrði þar verslun fyrir danskt fjelag, og bað
móðir mín liana rækilega fyrir mig, enda reyndist hún
mjer vel. — Margrjet var hin ágætasta kona í alla staði, og
var mjer góð og ráðholl þau 3 ár, sem jeg dvaldi í skólan-
um. — Jeg saumaði föt á bróður hennar. Hún borgaði
mjer fyrir að sauma þau, en jeg liafði jjað til að borga með
ýmislegt smávegis, sem jeg þurfti. Hún var vandvirk og
ljet ganga vel frá, en í þá daga var lögð áhersla á karl-
mannsfatnað, en síður á kvenfatnað.
Það fyrsta, sem byrjað var að læra, voru sláturstörfin, að
búa til slátur og sjóða það, svo var soðið niður slátursoðið
alt í stórar krukkur, og liaft til að smyrja á brauð, einnig
var soðið niður kjötsoð og smurt með því. — Sláturgerðin
stóð yfir í liálfan mánuð. — Ein stúlka var tekin til að
matreiða fyrir skólann, en tvær af námsmeyjunum voru
henni til hjálpar, eina viku hverjar tvær stúlkur. Þær
höfðu líka það starf að leggja í ofnana og halda hreinu.
Herbergjaskipun var þessi: 2 stofur, kent í báðurn, eitt
lítið herbergi, sem kennarar sváfu í. Svefnhei'bergi stúlkn-
anna var uppi, sváfu tvær og tvær saman í rúmi, svo var
eldhús, borðstofa, búr og skáli, þar var þveginn upp leir
og önnur matarílát.
Aðsókn var mikil að skólanum, 40 stúlkur komu það
haust, en alt hepnaðist vel, enda var Elín Briem framúr-
skarandi í allri stjórn skólans, reglusöm og stjórnsöm og
hafði strangt eftirlit með öllu sem fram fór i skólanum,
enda þótti sjálfsagt að hlýða reglum, sem settar voru. —
Farið var á fætur kl. 7 og öll ljós voru slökt kl. 11 á kvöld-
in. — Kenslutímar byrjuðu kl. 8. — Löng borð voru í
hverri stofu og voru 5—6 skúffur í borðinu, og sat hver
við sína skúffu. — Þegar kl. var 10 á kvöldin söfnuðumst
við saman og var lesinn húslestur, og áttum við að lesa