Hlín - 01.01.1954, Blaðsíða 36
34
Hlin
Minning Gyðríðar Þórhalladóttur,
Syðri-Steinsmýri í Meðallandi, Yestur-Skaftafellssýslu.
Rituð af dóttur-dóttur hennar, Gyðríði Pálsdóttur,
Seglbúðum í Landbroti, V.-Skaft.
Gyðríður fæddist 30. des. 1848 að Mörk á Síðu, en þar
bjuggu þá foreldrar hennar: Þórhalli Runólfsson og kona
hans Þuríður Jónsdóttir
(systir Eiríks hreppstjóra í
Hlíð í Skaftártungu). —
Hún var yngst af 14 börn-
um þeirra hjóna. — Tólf
ára gömul fluttist hún með
foreldrum sínum til Krísu-
víkur á Reykjanesi, en þar
bjuggu þau stuttan tíma,
og fluttu aftur í Skaftafells-
sýsluna.
Innan við tvítugt (27.
sept. 1807) giftist Gyðríður
Elíasi Gissurssyni á Syðri-
Steinsmýri í Meðallandi.
Þar bjuggu þau hjón nokk-
uð á fjórða áratug. Umalda-
mótin síðustu brugðu j:>au búi og fluttust þá að Þykkva-
bæ í Landbroti til Margrjetar dóttur sinnar og manns
bennar, Páls Sigurðssonar, foreldra minna. — í Þykkvabæ
dviildu þau svo, afi og amma, í full 20 ár, en afi ljest 1920.
Móðir mín andaðist árið 1922, þá fluttist amma mín til
Reykjavíkur, og átti heimili eftir það hjá Pálínu dóttur
sinni og tengdasyni sínum, Elíasi, yfirkennara, Bjarna-
syni, Laufásvegi 18. — Eftir því sem árin færðust yfir
þyngdi fyrir fæti, en hún naut frábærrar umönnunar og
GyÖriður Þórhalladóttir.