Hlín - 01.01.1954, Blaðsíða 123
Hlin
121
í kirkjunni, sem nú er nýviðgerð og máluð að innan, og
öll hin vistlegasta, þó senn sje hún 90 ára.
Haustið 1952 voru 40 ár liðin frá stofnun Húsmæðra-
skólans hjer. — í því tilefni gaf Kvenfjelagið „Ósk“ skól-
anum fagurt málverk eftir Kristínu Jónsdóttur, listmál-
ara. — Síðastliðin 6 ár hefur ,,Ósk“ lagt að mörkum til
líknar- og menningarmála rúm 50 þús. krónur, þar af
4500 krónur til fjelagskvenna úr Sjúkrasjóði.
Fjelagið hafði þrjú saumanámsskeið í vetur. Kensluna
annaðist ein fjelagskonan, Kristjana Samúelsdóttir. — 42
konur tóku þátt í þessum námsskeiðum og voru sauma-
laun metin um 27 þús. krónur. — Almenn ánægja var
með námsskeiðin.
Þá er rjett að geta þess, að ,,Ósk“ átti þátt í því, ásamt
hinum kvenfjelögunum hjer, fyrir hönd sinna mæðra-
styrktarnefnda, að keyptur var sumarbústaður í liaust hjer
á Dagverðardalnum, vonum við að hann verði konum til
hvíldar og ánægju að sumrinu.
Á mæðradaginn 1954 var tekinn í notkun hjer í bæn-
um nýr og góður barnaleikvöllur með fullkomnum leik-
tækjum. — Gæslustúlka er Dóra F. Jónsdóttir, hjeðan úr
bænum, er lnin sjermentuð á þessu sviði. — Völlurinn
mun kosta, að verki loknu, um 130 þús. krónur. — Nokk-
ur fjelög í bænuin hafa lagt honum lið, þar á meðal kven-
fjelögin „Ósk“ og „Hlíf“ — 10 þúsund krónur hvort.
Þess má einnig geta, að hjer í miðbænum er „bærinn“
að láta undirbúa allstóran blett, þar sem á að verða skrúð-
garður framtíðarinnar, „Austurvöllur" okkar ísfirðinga.
— Kvenfjelagið „Ósk“ sendi honum 5 þúsund krónu.r um
daginn, þegar hafist var handa, og mun hugsa betur til
lians seinna, enda ber okkur „að styðja að öllu því, er til
ánægju og þrifa lýtur fyrir bæjarbúa", — eins og segir í 1.
gr. okkar fjelagslaga, um tilgang fjelagsins, og það reyn-
um við að gera, eftir því sem getan leyfir.
19. júní fóru allmargar konur úr kvenfjelögunum inn í
Tunguskóg, til gróðursetningar, í friðuðum reit, sem