Hlín - 01.01.1954, Blaðsíða 121
Hlin
119
sem til þeirra þarf. — Það fje, sem inn kemur, rennur því
óskift í sjóð fjelagsins, enda eru þetta aðaltekjur þess.
Eitt það fyrsta, sem fjelagið beitti sjer fyrir, var að
kaupa spunavjel. — Má hver, sem vill og getur, spinna á
hana gegn vægu afnotagjaldi. — Hefur hún verið til mik-
illa nota. — Hún er til húsa lijer í Heimavistarskólanum.
— Einnig gaf fjelagið nokkra fjárhæð til Barnaskólabygg-
ingarinnar og orgel í skólahúsið. Nokkru hel'ur verið safn-
að til væntanlegs Sjúkrahúss á Sauðárkróki. — Fjelagið á
nú dálítið í fjelagssjóði, og einnig ofurlítinn jólagjafa-
sjóð, sem helgaður er minningu látinnar merkiskonu, sem
hjer var rnjög ástsæl, Önnu Kvaran á Mælifelli. Gekst
hún fyrir stofnun kvenl'jelagsins og var fyrsti formaður
þess.
Fundir fjelagsins eru lialdnir Iieirna hjá konunum til
skiftis. — A jeg margar skemtilegar minningar frá þeim,
og hygg jeg að svo muni vera um fleiri. — Þykir mjer lík-
legt, að við höfum allar bæði ánægju og gagn af þessurn
samverustundum. — Það gerir okkur víðsýnni að kynn-
ast og starfa saman. — Góður fjelagsskapur eflir sam-
lieldni og samúð og þroskar á ýrnsan hátt. — Við lærum t.
d. að taka tillit til fleiri sjónarmiða, en líta ekki á málin
frá okkar sjónarhól eingöngu.
Mjer virðist einnig fjelagið vera nrjög vinsælt. Ekki
einungis hjá konunum, heldur einnig hjá körlunum. —
Því til sönnunar vil jeg geta þess, að þegar fjelagið var 10
ára, sendi einn merkisbóndi því 500 kr. í afmælisgjöf,
sem varið var, eftir ósk hans, til þess að kaupa trjáplöntur,
sem gróðursettar voru hjer á skólalóðinni.*
Heimavistarskóla Lýtingsstaðahr. á Kyndilmessu 1954.
Herselía Sveinsdóttir.
* Skólinn, sem er mikið og veglegt hús, er hitað upp með
hveravatni, sem gnægð er af beggja megin Svartár. — Bygða-
hverfi eru að myndast þarna vegna jarðhitans. Og í sumar kom
rafmagnið frá Gönguskarðsá. Mælifell er endastöðin.