Hlín - 01.01.1954, Blaðsíða 89
'Hlin
87
lenska búningsins: Peysuföt og upphlutir. — Karlmanns-
jakkar einir undanskildir.
Á Ströndum er erfitt að halda saman fjelagsskap sökum
strjálbýlis og samgönguerfiðleika, en Strandakonurnar
víla ekki fyrir sjer að sækja fundi, námsskeið og kirkju,
þó yfir fjöll og firði sje að fara .— Þegar jeg vann við
námsskeið í Árnesi við Norðurfjörð, kom formaður fje-
lagsins: Elín Guðnrundsdóttir frá Ófeigsfirði, í heimsókn
til okkar. Nokkuð af leiðinni fór hún á bát, en nokkuð
gangandi yfir fjöll og fjörur. — í Árnesi var jeg 12 daga,
eða milli ferða strandferðaskipsins „Skjaldbreið".
Þarna úti á Ströndum er mikill menningarbragur. Þar
er búið að koma upp prýðilegu fjelagsheimili. — Þarna
eru stundum skíðaíþróttir iðkaðar og fjelagslíf vinsam-
legt og heilbrigt. — Þau skemma það heldur ekki ungu
prestshjónin í Árnesi: síra Björn Jónsson og frú Fríða,
bæði hinar elskulegustu manneskjur. Jeg hjelt til hjá
þeim í nýbygðu, ágætu liúsi, sem bygt var yfir prestinn
þar. — En þar sem verutíminn var stuttur og nóg að gera,
var ekki tírni til að fara rnikið eða kynnast fólki. Engu að
síður sá jeg rnargt fólk þarna samankomið, bæði við
kirkju og eins á skemtun, sem haldin var í fjelagsheimil-
inu í sambandi við námsskeiðið og sýningu 'þá, sem höfð
var að námsskeiðinu loknu.
Frá Árnesi fór jeg að Drangsnesi og var þar 3 vikur.
Þar voru margar konur, svo það þurfti að tvískifta þeim,
Jrannig að 12 voru í 9 daga og 11 í 9 daga. Þar var unnið
mikið og sýning höfð að loknu starfi. — Frá Drangsnesi
fór jeg með trillubát yfir Steingrímsfjörð að Kirkjubóli.
Þar var haldið námsskeið hjá formanni Sambandsins,
Ragnheiði Lýðsdóttur. — Að koma að Kirkjubóli til
Ragnheiðar og Benedikts Grímssonar, er eins og að koma
á greifasetur. Byggingar Jrar allar og búsnild utanhúss og
innan með þeim snyrti- og myndarbrag sem best má
verða. — Þar var íraldið námsskeið og sóttu Jrað að mig
minnir 14 konur. — Þaðan fór jeg svo til Hólmavíkur, og