Hlín - 01.01.1954, Blaðsíða 29
Hlin
27
— Minning þessai'ar konu geymist í þakklátum huga allra
þeirra, sem kyntust henni. — Hún andaðist 22. jan. 1950.
Guð blessi minningu hennar!
Viktoría Bjarnadóttir.
-----o-----
Þorbjörg Bergmann var fædd 13. apríl 1876 í Pálsbæ
á Seltjarnarnesi, dóttir Sigríðar Jafetsdóttur, (sem var
bróðurdóttir Ingibjargar, konu Jóns forseta), og Sigurðar
Einarssonar.
Systkinin í Pálsbæ voru 11, sem öll urðu dugnaðar- og
myndarfólk. — Þorbjörg fluttist með foreldrum sínurn að
Seli við Reykjavík. Stundaði hún nám við Kvennaskól-
ann í tíð frú Þóru Melsted. Hlaut hún verðlaun við brott-
för sína úr skólanum fyrir sjerstaka vandvirkni í handa-
vinnu. — Heyrt hef jeg kennara segja, sem kendi stærð-
fræði við Kvennaskólann á þeim tíma, að sjer væri minn-
isstætt, hve Þorbjörg hefði veitst ljett að læra reikning.
Árið 1900 giftist Þorbjörg Sigfúsi Þorsteinssyni Berg-
mann, verslunarmanni. — Setti hann upp verslun í Hafn-
arfirði, sem hann stundaði til dauðadags. — Hann dó 1918
úr spönsku veikinni. — Þau hjón eignuðust 3 dætur,
misti hún 2 þeirra nreð 2ja ára millibili, dó önnur systirin
1920 og hin 1922, svo skamt liefur verið stórra liögga
milli hjá henni á þeim árum.
Hulda, dóttir hennar, sem eftir lifði, giftist Einari
Sveinssyni, múrarameistara. — Eftir dauða manns síns rak
frú Þorbjörg vefnaðarvöruverslun í Hafnarfirði þar til
1936, að hún fluttist til dóttur sinnar og tengdasonar, sem
búsett eru í Reykjavík, og var hjá þeim til dauðadags.
Nærri rná geta hve þungur harmur hennar hefur verið
að missi manns síns og dætra, en hún hafði orð á því við
mig, „að sjer fyndist hún hafa eins vel og hugsanlegt væri
fengið bættar upp þær raunir, sem á undan væru gengn-
ar“. Slík ummæli tala sínu máli, hvernig ástvinirnir reynd-
ust lrenni.