Hlín - 01.01.1954, Blaðsíða 45
Hlin
43
Ingibjörg Markúsdóttir
í Ási í Vatnsdal. Fædd 1. júlí 1830 á Ytri-Löngumýri í
Blöndudal. Dáin 19. mars 1916 í Ási í Vatnsdal.
Þegar jeg minnist móður minnar, þá finst mjer jeg ekki
fær um að gera það svo vel sje. — Hún var í hærra lagi
meðalkvenmaður urn tví-
tugt, og afburða vel vaxin,
ekki nettfríð í andliti, en
gáfuleg augun og yfirbragð
alt, eins og myndin sýnir. —
Hún þótti hög á hendur og
yfir höfuð verkkona nrikil,
hjartagóð og örlát við alla
smælingja, sem lienni fanst
ekki sitja sólarmegin í
hennar samtíð, þá var upp-
eldi á alþýðunni harðleikn-
ara en nú gerist. — Móðir
mín var kjarkmikil og vilja-
sterk, og kom rnörgu góðu
til leiðar á heimili sínu ein-
mitt fyrir þá eiginleika.
Tveggja ára gömul fór hún í fóstur að Haukagili í
Vatnsdal til merkra hjóna, Sigríðar Jónsdóttur og Jóns
Skúlasonar. Þær voru vinkonur, húsmóðirin á Haukagili
og Solveig móðuramma mín, en hún var fátæk með mörg
ung börn eftir, með manni sínum Markúsi Andrjessyni,
sem var Eyfirðingur að a^tt.
Móðir mín fór snennna úr fóstri, því hún sagðist ekki
hafa getað lært verulega kvennaverk, hún var notuð við
drengjaverk utanbæjar, sem lienni fjell ekki vel. —
Þrettán ára gömul fór hún frá fósturforeldrunum til móð-
ur sinnar og elstu systur, sem var gift kona á Hurðarbaki
í Vesturhópi í Vestur-Húnavatnssýslu. Þar var hún ferrnd
Ingibjörg Markúsdóttir.