Hlín - 01.01.1954, Blaðsíða 109
H lin
107
Frjettir frá fjelögum.
Yfirlit yfir sögu Sambands austfirskra kvenna, flutt á 25
afmæli Sambandsins að Hallormsstað 16. ágúst 1952, af
Guðrúnu Pálsdóttur, Hallormsstað.
Það myndu ekki þykja mikil tíðindi nú á dögum, þó að
nokkrar konur kæmu saman til að ræða áhugamál sín.
Fyrir 25 árum þurfti til þess allmikið framtak, víðsýni
og kjark.
Sá, sem ríður út í óþekt lljót, veit ekki fyrirfram hvern-
ig það er í botninn, hve djúpt það er, eða hve straunr-
þunginn er mikill. En sá, sem situr á traustum hesti, á
hugrekki í brjósti sínu og telur sig ekki upp úr því vax-
inn að fara með ferðabænina sína, áður en hann leggur á
vaðið, hann kemst yfir í gegnum miklar torfærur.
Við skulum bregða okkur í anda inn í fundarsalinn á
Egilsstöðum á Völlum þann 18. júlí árið 1926. Þarna
voru samankomnar konur úr Fellum og Fljótsdal, af Völl-
um, Reyðarfirði, Seyðisfirði og Borgarfirði. — Einnig var
Sigurborg Kristjánsdóttir frá Múla í ísaf jarðarsýslu (síðar
forstöðukona Húsmæðraskólans á Staðarfelli) mætt á
fundinum sem gestur. — Kvenfjelög á Hjeraði höfðu
gengist fyrir því, að hún kæmi hingað í þeim erindum að
flytja fyrirlestra. Var það nreð ráði gert að boða þennan
kvennafund, nreðan hún dveldi hjer eystra.
Hjer fer á eftir kafli, tekinn upp úr fundargerðinni:
I. Sigrún P. Blöndal, Mjóanesi, setti fundinn. — Bauð
hún fundarkonur Velkomnar í nafni fundarboðenda og
skýrði frá tilgangi fundarins. — Sjerstakilega bauð lrún vel-
konrna gest fundarins, Sigurborgu frá Múla. — Lagði liún
til, að allar fundarkonur lrefðu atkvæðisrjett um þau mál,