Hlín - 01.01.1954, Blaðsíða 90
88
Hlin
var þar í 12 daga. Sóttu það námskeið 22 konur og unnu
þær mikið. Þar voru sniðnar og saumaðar hálftannað
hundrað flíkur og þaraf rúmar 100 fullgerðar, sem settar
voru á sýningu að námsskeiðinu loknu.
En þarna á Hólmavík var of mikið unnið, svo sauma-
kennari endist ekki til að vinna svo langan vinnudag til
lengdar, enda komið langt fram yfir þann samning sem
upphaflega var gerður. — En þegar tírninn er naumur og
þörfin mikil hjá konunum að fá saumað, þá lætur maður
til leiðast að leggja á sig lengri vinnutíma og má þá taka
aukakaup fyrir þá tíma, sem eru yfir hina 6 ákveðnu tíma,
en út á auka tímakaup fæst ekki styrkur greiddur, bara
á fast ákveðna kaupið, eða jressar 500.00 kr. á viku, sem
maður er ráðinn upp á samkvæmt 6 stunda vinnu.
Jeg hef unnið mikinn part af síðastliðnum 3 vetrurn
við saumanámsskeið í þessum tveim sýslum og hefur ver-
ið nrikið utrnið og konurnar yfirleitt nrjög ánægðar nreð
árangurinn af Jreim, og væri óskandi að hægt væri að út-
vega slíka hjálp senr víðast út unr landsbygðina, því það
er bæði mikil þörf fyrir saumaskapinn og nrikill lærdónr-
ur í því fyrir konurnar að fá tilsögn með að saunra algeng-
an fatnað.
En það þarf bara að lrafa Jrað lrugfast að búa þannig að
þessum umferðakennurunr, og ofhlaða þær ekki svo
vinnu, að þær gefist upp á starfinu — og enga verði lrægt
að fá að lokum. — Annars lref jeg hlotið þakklæti og
hlýju allstaðar, sem jeg hef unnið. — Það ljettir nranni
starfið, þegar metið er það senr maður vill vel gera.
Að endingu vil jeg svo þakka öllum, sem jeg hef unnið
með og sagt Lil á Jressum nánrsskeiðum. — Þakka þeim
samveruna, sanrstarfið og hlýjan hug, senr lengi fylgir
mjer. Jeg ylja mjer við þær nrinningar.
Blönduósi í maí 1954.
»
Ragnheiður Brynjólfsdóttir frá Ytriey.