Hlín - 01.01.1954, Blaðsíða 87
Hlin
85
við á vegum kvennasambanda í Húnavatns- og Stranda-
sýslum undanfarna vetur. — Jeg vil fegin verða við ósk
hennar og skrifa því eftirfarandi:
Fyrst kynti jeg mjer tilhögun og kjör þessara umferða-
kennara hjá Rannveigu Þorsteinsdóttur, lögfræðingi, sem
góðfúslega gaf mjer allar upplýsingar. Eru þær á þessa
leið:
Kennari skal hafa 8—12 konur á hverju námsskeiði, og
æskilegt að 'hvert námsskeið standi að minsta kosti 10
daga, og þá svo lengi sem fjelögin óska, eða aðrar kring-
umstæður leyfa.
Kaup kennara sje £00.00 krónur á viku miðað við 6
stunda vinnu (4 stundir kenslan og 2 stundir, sem kennar-
inn notar til að sníða og við annan undirbúning).
Af þessum 500.00 kr. greiðir sýslusambandið 1/3, sem
Jrað fær síðan endurgreitt frá Kvenfjelagasambandi ís-
lands, sem veitir styrk út á þessi námsskeið að 1/3 af föstu
kaupi kennarans. — Kennarinn fær frítt fæði og húsnæði,
einnig ferðir.
En svo hefur oft orðið umtal og ágreiningur um það,
hver eigi að greiða þennan kostnað. — Sumstaðar hafa
kvenfjelögin greitt allan kostnað af námsskeiðunum, og
þær konur, sem nutu kenslu á námsskeiðunum þurftu
ekkert að borga. — En með því fyrirkomulagi myndu fá-
tæk ljelög fljótt verða fjelaus, ef námsskeið væru haldin
árlega. — Út af Jressu urðu oft vandræði og leituðu þá
konur stundum ráða hjá mjer um tilhögun, svo jeg samdi
greinargerð frá mínu sjónarmiði og var víðast farið eftir
henni. — Hún var á þessa leið:
1. Helst að hafa ekki færri konur en 6—8, og alflestar 12.
2. Kenslutími 4 stundir á dag og 2 tírnar til undirbún-
ings. (Kennarinn vinnur þannig 6 stundir á dag).
3. Allur kostnaður deilist á Joær konur, senr njóta kensl-
unnar á námsskeiðunum, einnig kostnaður við veru kenn-
arans á staðnum.