Hlín - 01.01.1954, Blaðsíða 154
152
Hlín
svæðinu boðnar til kaffidrykkju, og skemt með ræðuhöldum,
kvikmyndum, söng og dansi. — Skemtu konur sjer hið besta og
hyltu Kvenfjelag Reykdæla með ferföldum húrrahrópum. —
Var öll frammistaða fjelagsins til hins mesta sóma.
Verðlaun „Hlínar“.
í 35. árg. „Hlínar“ 1953 var heitið verðlaunum fyrir fallega og
hentuga dyramottu og teppi framan við rúm. — Nokkrir munir
hafa borist til keppninnar. Og hlutu þessir munir verðlaun:
Ofin hrosshársmotta, unnin af Sigþrúði Stefánsdóttur frá Ak-
urseli, N.-Þing. En faðir hennar spann hrosshárið.
Prjónuð hrosshársmotta, unnin af Stefaníu Grímsdóttur,
Húsavík í Strandasýslu. — Og lítið teppi. Unnið hefur Ingólfur
F. Jónsson, Húsavík, Strandasýslu. — Teppið er saumað í striga
með togbandi (krossaumur). — Ingólfur vann teppið að mest-
öllu leyti. — Bjó einnig til munstrið.
Gömul útsölukona „Hlínar“ skrifar vorið 1954: Svo hefur
maður lifað þennan góða vetur og því má maður ekki gleyma.
Það er víst hvergi betra að vera en á þessu litla landi okkar.
Guð gefi að þjóðinni megi lærast að hlúa sem best að því og
elska bað.
Úr sjálfsæfisögu Páls Melsteds, sagnfræðings: (Bændatal á
Hjeraði.) Jón Þorsteinsson bjó á Kóreksstöðum í Hjaltastaða-
þinghá. — Hann lærði vefnað utanlands, og var oft nefndur Jón
„vefari“. — Hann kendi móður minni vefnað, og eflaust hafa
margir af honum lært, enda var þá mikil og góð tóvinna um alt
F1 j ótsdalshj erað.
Á Viðarsstöðum á Utmannasveit bjó bóndi sá, er Jón hjet,
hann var rennismiður mikill, og var mjer sagt, að hann hefði
smíðað 900 rokka, þeir voru þar um allar sveitir. Stuðlarnir af
innlendum birkivið, en hjólin af rekavið, vængurinn af hrúts-
horni, allir voru þeir ólitaðir. — Mig minnir að hann seldi rokk-
inn á eina spesíu (það er sama sem fjórar krónur nú á tímum).
Úr Gufudalssveit, Barðastrandarsýslu: Frjettir eru fáar hjeð-
an úr Gufudalssveit. Við kvenfjelagskonur hjeldum skemtun
seint í sumar til ágóða fyrir starfsemina. — Við höfðum leikþátt,
upplestur, böglauppboð og dans til skemtunar. — Ágóði varð
sæmilegur.
Hreppstjórinn okkar er Andrjes á Brekku, eflaust einn elsti
hreppstjóri landsins, mjer er sagt að hann sje 86 ára, hann