Hlín - 01.01.1954, Blaðsíða 122
120 Hlín
Frá ísafirði:
Eftir ósk þinni sendi jeg þjer hjerna nokkrar línur í
f'rjettaskyni:
Mjer hefur fundist lítið frá okkur í Kvenfjelaginu
„Osk“ að segja, sem í frásögur er færandi.
Fjelagið er bráðum fimtugt (47 ára), og því best að
við höfum hljótt um okkur á prenti þessi árin, þangað
til að okkar hálfa öld rennur út í tímans haf.
Við höfum síðustu árin ekki staðið í neinum stórræð-
um, en viðleitnin er sú sarna, að reyna að láta eitthvað
gott af okkur leiða í þessu bæjarfjelagi, sem við búum í.
í kvenfjelaginu ,,Ósk“ eru nú 109 konur. Fundina höf-
um viðhaldið í Húsmæðraskólanum. Flestar vorum við á
fundi 55 í vetur. — Skemtinefnd er kosin fyrir hvern fund
og annast hún skemtiatriðin eða fær „skemtilegt fólk“ úr
bænum til að koma í lieimsókn. — Á hverjum fundi er
innanfjelagsblaðið „Hvöt“ lesið, og flytur það altaf eitt-
hvað til fróðleiks og skemtunar. — Þessar konur skrifuðu
í „Hvöt“ síðastl. vetur:
Anna Sigfúsdóttir: Um daginn og veginn. — Anna Jónsdóttir:
Ferðasaga, með togara til Esbjerg. — Hertha Leósson: Hugleið-
ingar um áramót. — Lára Eðvarðsdóttir: Gerum lífið þess vert
að lifa því (erindi, þýtt). — Hólmfríður Jónsdóttir: Frásögn um
dvöl við háskóla í Bandaríkjunum. — Hertha Leósson: Frum-
saminn leikþáttur: „Þegar óskir rætast“.
„Hvöt“ er nú 34 ára og hefur altaf haldið velli.
Síðastliðið haust tókum við okkur til og „gengum til
kirkju", og með aðstoð góðra manna tókum við til við að
fægja og fegra öll ljósastæði og krónur kirkjunnar fyrir
minningarathöfn, sem fram fór hjer í ísafjarðarkirkju um
okkar ástsæla, látna biskup, Sigurgeir Sigurðsson.
Svo kom okkur það í hug, að kirkjan þyrfti að fá nýjan
dregil á gólfið, og varð það að samkomulagi að kven-
fjelögin „Ósk“ og „Hlíf“ gæfu kirkjunni sameiginlega
dregil á kirkjugólfið og í kór, var svo gert, og var þessi
flosdregill settur á fyrir jólin, og er hann til mikillar prýði