Hlín - 01.01.1954, Blaðsíða 65
Hlín
63
Kvennaskólinn á Blönduósi.
Eftir forstöðukonu skólans Huldu Á. Stefánsdóttur.
A þessu hausti á Kvennaskólinn á Blönduósi 75 ára af-
mæli. — Var settur í fyrsta sinn að Undirfelli i Vatnsdal
26. okt. 1879. — Þröngt var í baðstofuhúsinu á Undirfelli,
svo ekki þótti gerlegt að koma þar fyrir nema 5 náms-
meyjum, og því var vetrinum skift í þrjú námstímabil,
svo að sem flestar stúlkur gætu notið þar tilsagnar yfir
veturinn. — Húnvetnskum bændadætrum fanst skólinn
á Undirfelli mikil „Guðs gjöf“. — Móðursystir mín, sem
seinna fór til Vesturheims, og lifði þar langa æfi, var svo
lánsöm að komast að í skólanum á Undirfelli og mintist
veru sinnar þar alla tíð. Unni hún mjög endurminning-
um þaðan.
Skólinn var fyrstu árin á hálfgerðum hrakningum, en
fjekk loks samastað á Ytri-Ey 1883, og við þann stað var
hann kendur, þar til hann var fluttur að Blönduósi 1901,
og þar hefur hann stáðið síðan.
Kvennaskólinn á Blönduósi var að mestu sniðinn eftir
Kvennaskóla Reykjavíkur. — Þar var aðallega um bók-
nám að ræða. — En þegar skólum fjölgaði í landinu, og
stúlkur áttu kost á að njóta mentunar jafnt og piltar,
fanst þeim, er rjeðu ráðum Kvennaskólans á Blönduósi,
hyggilegt að breyta reglugerð skólans, auka verklegt nám,
en fækka jafnframt bóklegum námsgreinum. — Tilraun
var gerð í þá átt veturinn 1923—’24. — Kom þá að skólan-
um gáfuð og mikilhæf forstöðukona, sem hafði trú á, að
slík breyting yrði giftudrjúg. — Enginn húsmæðraskóli
var þá í landinu nema hússtjórnardeild við Kvennaskól-
ann í Reykjavík, og „Hússtjóm" Hólmfríðar Gísladótt-
ur í Reykjavík.
Þetta sama haust rjeðust einnig góðir kennarar að skól-
anum, sem höfðu áhuga á að styðja forstöðukonuna eftir
mætti. — Má segja, að þessi vetur hafi verið tilrauna-