Hlín - 01.01.1954, Blaðsíða 73
Hlín 71.
spítalahjúkrunarkonuna, undir handarjaðri læknisins,
gæti ekki dreymt um.
Sjúkraskýlið hefur tekið miklum stakkaskiftum síðan
1945. iÞá var. þar kolakynding fyrir húið og böðin, kola-
eldavjel í eldhúsi, vatninu, sem var takmarkað að vöxt-
um, dælt úr ljelegum brunni, skólpi úr böðunum dælt
burtu með ljelegri handdælu, o. s. frv. — Smásaman hefur
þetta verið endurbætt, fengin olíukynding, vatnsleiðsla,
skolpleiðsla, rafmagn frá Sogsvirkjuninni, rafnragnselda-
vjel, rafmagnspottur, nýir ofnar, gólfdúkar, þar sem þá
vantaði, komið upp ljósböðum og herbergi í kjallara lag-
fært fyrir þau. — Síðast í sumar var sjúkraskýlið málað
utan og innan, og er nú vistlegt mjög og búið flestum
þægindum. — þó er nokkuð eftii' að gera enn, einkum ut-
anhúss, og ætti að starfrækja skýlið alt árið, þyrfti að vera
afgirtur, ræktaður reitur kringum húsið.
Hjúkrunarkonan gerir meira en að sinna störfunx á
sjúkraskýlinu. Hún fer í sjúkravitjanir svo hundruðum
skiftir í braggana og út um þorpið og í nágrenni þess.
Hún hefur einnig oftast haft með höndum heilbrigðiseft-
irlit í barna- og unglingáskÖlanum og stundum kent
unglingunr hjálp í viðlögum.
í sjúkraskýlinu þarf að lrafa nokkuð af lyfjum og um-
búðum til taks, ekki eingöngu til eigin þarfa, heldur einn-
ig fyrir bátana og fólkið yfirleitt, því ekki verður hlaupið
til Keflavíkur í snatri, eða hvenær sem er. — Þótti mjer,
einkunr í byrjuir, vandasanrt að sigla þar milli skers ,og
báru, láta ekki annað etr það sem leyfilegt og skaðlaust
er, en á hinh bóginn reyna að sinna þoifum fólksins og
gera það ánægt. — Oft er býsira örðugt að vita, hve miklar
byigðir þarf að útvega, þar sem skýlið starfar aðeins hluta
úr áriiru, og nrargur vill ógjarnan liggja með mikið, sem
svo e. t. v. verður óirýtt. — Hjúkrunarkonan ber fjárlrag
skýlisins fyrir brjósti, og reyirir að láta lrann vei'ða sem
bestan. — Verðlagi öllu er þó mjög stilt í lróf, eir sjómeinr