Hlín - 01.01.1954, Blaðsíða 101
Hlin
99
II.
Höfuðleiðtogi hreyfingarinnar er Frank Buchmann,
lútherskur prestur. Það hefur verið með rjettu bent á, að
uppistaðan í boðun hans sje fengin hjá lúthersku kirkj-
unni, enda þótt hreyfingin sjálf sje ekki bundin af neinni
kirkjudeild, og starfi jafnvel meðal Búddhista, Múham-
eðstrúarmanna og heiðinna þjóða.
Aðalþættirnir eru sem hjer segir:
Heimurinn þarf að breytast, ef ekki á illa að fara. — Of-
beldis- og einræðis-viljinn stafar af efnishyggjunni, því
efnishyggjumennirinr telja sig ekki ábyrga gagnvart
neinu, nema mannlegu valdi. Þess vegna þarf að endur-
vekja guðstrú mannkynsins. — Styrjaldirnar eiga rót sína
að rekja til eigingirninnar, sem ekki er einkenni „vest-
urs“ nje „austurs" sjerstaklega, heldur mannanna yfir-
leitt. — Eigi heimurinn að breytast, þurfa mennimir
sjálfir að breytast. Og vilji einhver reyna að hafa áhrif á
það, að heimurinn breytist, verður hann fyrst og fremst
að taka breytingu sjálfur.
Orðið breyting (change) er notað fremur en „aftur-
hvarf“ eða „sinnaskifti", sennilega vegna þess, að í ýmsum
kirkjudeildum hafa þau orð fengið sjerstakan blæ, og eru
helst ekki látin eiga við annað en snögt og nærri því
ósjálfrátt afturhvarf. — Meðal MRA-fólksins virðist
,,breytingin“ fremur hefjast með rólegri íhugun og sjálfs-
prófun.
En maðurinn má ekki ætla, að hann taki fullkominni
breytingu í eitt skifti fyrir öll. Hann þarf á hverjum
morgni að spyrja sjálfan sig, hvaða breytingum liann
þurfi að taka í hugsunarhætti og breytni. — 'Þetta nefndi
I.úther daglegt afturhvarf.
Eigi maðurinn að breytast, gefur að skilja, að hann
verður að miða breytinguna við einhvern siðferðismæli-
kvarða. — Hann er innan hreyfingarinnar táknaður með
f'jórum siðferðiskröfum, sem eru: Alger heiðarleiki, alger
hreinleiki, alger óeigingirni og alger kærleikur.
7'