Hlín - 01.01.1954, Blaðsíða 100
98
Hlín
Siðferðileg endurvakning.
Eftir síra JAKOB JÓNSSON.
I.
Það var sumarið 1948, að jeg ijekk tækifæri til þess að
dvelja nokkra daga í Caux í Svisslandi, til þess að kynnast
Jreirri hreyfingu, sem nefnd er á íslensku „Siðferðileg end-
urvakning". — Á ensku er lu'in nefnd Moral Re-arma-
rnent, sem þýðir orðrjett siðferðileg endur-hervæðing. —
Upphaflega var hreyfingin nefnd Oxford-stefnan (nýrri),
og átti hún aðallega fylgi innan kristninnar, og var ætlað
það hlutverk að endurvekja trúarlíf og siðferðisþrótt
mannkynsins. En síðar tók hreyfingin nokkurri breyt-
ingu og skifti um nafn.
Bæði eftir fyrri styrjöldina og hina síðari, var orðið
endur-hervæðing á margra vörum. En dr. Buchmann,
presturinn, sem er spámaður og leiðtogi stefnunnar, hjelt
því þá fram, að mannkynið mundi aldrei tryggja friðinn
í heiminum með liervæðingu, þ. e. a. s. með vopnum og
vígvjelum. Meiri nauðsyn væri á annari hervæðingu, sem
væri í því fólgin, að þjóðirnar efldu að nýju með sjer
kristilegt siðferðislíf og trú. — Og nú færði hreyfingin út
kvíarnar, og hefur náð til manna af öðrum trúarbrögðum
en kristnum, eins og hún hafði áður náð til kristinna
manna af öllum kirkjudeildum.
Hjer er ekki á ferðinni ný trúarstefna eða nýr kristin-
dómur, þó að þar sjeu viss atriði kristinnar kenningar,
sem mest áhersla er lögð á. — Það eru starfsaðferðirnar,
sem einkenna hreyfinguna miklu fremur en kenningin
sjálf. Mætti raunar segja, að það væri ekki ný kenning,
heldur nýtt líf, sem hjer væri verið að boða.