Hlín - 01.01.1954, Blaðsíða 103
Hlín
101
vel hinar leyndustu hugsanir sínar, og kannast við yfir-
sjónir sínar. Minnir þetta á skriftir kirkjunnar að sumu
leyti.
III.
Utbreiðsluaðferð hreyfingarinnár er algerlega miðuð
við nútímann. Menn nota mikið blöðin og útvarpið, og
drága sig engan veginn í hlje í frjettadálkum heimsblað-
anna.
Oft fara stórir hópar í ferðalög rnilli landa, bjóða fólki
af öllum stigiim í te-boð og til annara samfunda til viðtals.
Og á hverju ári eru haldnar ráðstefnur í höllinni í Gaux
í Sviss, og ef til vill víðar um heiminn. Koma þangað
menn af hinum ólíkustu flokkum og stigum, til þess að
ræða saman, kynnast hver öðrum og gefa hver öðrum hlut-
deild í reynslu sinni. — Dvelja menn þá í hinni fögru
hölí, þar sem dýrð Alpanna blasir við augum. — Á vissurn
tímum dagsins fara fram ræðuhöld, söngur og sjónleikir,
en þess á milli líður dagurinn við hljóðar íhuganir og sam-
töl. — Andrúmsloftið er þar gerólíkt flestu því, sem jeg
hef kvnst annarstaðar, og er margt, sem því veldur. —
Mörgum mun þar fara sem mjer, að þeir eigi erfitt með
að fella sig við allt, en eitt er víst, að enda þótt hugurinn
búi yfir mikilli gagnrýni, þá er ómogulegt að dvelja í
Caux, án þess að finna, að þarna er eitthvað að gerast, sem
máli skiftir fyrir heiminn, — j^ótt ekki sje annað en það,
að málsmetandi menn af ótal þjóðum, stjettum, pólitísk-
um stefnum og kirkjudeildum kynnast hver öðrum.
Margt er þar af ungu fólki.
IV.
Nokkrar myndir rifjast uþp fyrir mjer, og varpa ljósi
yfir hugsunarhátt og starf hreyfingariniiar. — Mjer dylst
það ekki, að þarna eru margir saman komnir, sem orðið
hafa fyrir verulegum áhrifum, og hafa frá ýmsu að segja.
Mjer koma í hug írsk prestshjón, glæsimenni bæði tvö.