Hlín - 01.01.1954, Blaðsíða 120
118
Hlin
liefur verið lyft, þá vill enginn hafa það á samviskunni
að hafa legið á liði sínu. — Það verður aldrei of oft fram
tekið að „Margt smátt gerir eitt stórt“.
----o-----
Ræða sú, er viðtakandi formaður, Margrjet Friðriks-
dóttir, flutti á fyrsta fundinum eftir andlát Sigrúnar P.
Blöndal, einkendis af því hugarfari, sem segir: „Ekki
skal gráta Björn bónda, heldur safna liði.“
Og nú bið jeg ykkur, kæru sambandssystur, sem finst
eins og mjer, að alt of lítið hafi verið hægt að gera þetta
tímabil til styrktar, að nrissa ekki trúna á sigurmátt sam-
takanna. — Og verið vissar um, að hin sanna viðleitni
heilshugar byggir upp í hinunr innra andans heimi og
þangað eiga allar sannar framfarir rætur sínar að rekja.
Hjer er því ekki aðspurt: „Hefur þú aðstöðu til að
njóta nrunaðar og gæða lífsins í ríkunr mæli?“ — Heldur:
„Áttu trú á sigurnrátt lrinna góðu afla, senr í mannssál-
unum búa, og einkennist starf þitt af vilja til að vera
samstarfsmaður þeirra?"
Hallormsstað í ágúst 1952.
Guðrún Pálsdóttir.
Frjettir frá skagfirsku kvenfjelagi.
Lýtingsstaðahreppur er fremsti hreppur Skagafjarðar,
vestan Hjeraðsvatna. — Hreppurinn er nrjög stór, yfir 60
býli, og er þó víða langt milli bæja. — Samgöngur eru
því ekki góðar. — Bæjaröðin er sunrstaðar fjórsett, og því
langt á þjóðveginn frá mörgunr bæjum. — Það er því að
vonum erfitt að halda hjer uppi fjörugu ljelagslífi. —
Með kvenfjelagið kalla jeg að þetta hafi þó gengið sænri-
lega. Það var stofnað árið 1939 og heitir „Kvenfjelag
Lýtingsstaðahrepps". — Stofnendur voru aðeins 14, en nú
eru fjelagskonur rúnrlega 40. — Fjelagið lreldur eina til
tvær skemtisamkomur árlega. — Gefa ljelagskonur alt