Hlín - 01.01.1954, Blaðsíða 92
90
Hlin
Ennþá meiri vandi og ábyrgð er þó lögð á herðar þeirra,
er uppfylla eiga og gera góð skil þörfum manns á sviði
fæðunnar. — Dagleg störf allra, eða að minsta kosti all-
flestra húsmæðra hjerlendis, eru meðal annars þau að sjá
um fæðið fyrir heimilisfólk sitt. Húsmæðrunum er þar
fengið í hendur mikilvægt verkefni og vandasamt.
María Curie, snillingurinn, sem í raun og veru opnaði
mannkyninu nýjan heim, er hún með frábærri elju og
þrautseigju gefst ekki upp við að leysa úr læðingi gátu
hinna geislavirku efna, þó maður hennar og samstarfs-
maður væri alveg að missa móðinn — ljet svo ummælt,
eftir að hún fór að matbúa á heimili sínu: — Að það væri
engu minni vandi að búa til góðan mat en að leysa úr
þungum, efnafræðilegum rannsóknum.
Jeg geri ráð fyrir, að allar konur, er við matreiðslu
fást, vilji leysa það verkefni af hendi með fylstu sam-
viskusemi, enda talsvert í liúfi að vel takist, því það gefur
auga leið, að líðan manna og heilsa fer nokkuð mikið eft-
ir því, hvernig þar tekst til, þó fleira komi að sjálfsögðu
til greina, sem eykur eða rýrir vellíðanina. — Maðurinn
er ekki aðeins líkami, — hann er líka og auðvitað fyrst og
fremst sál. — En sál og líkami eru svo nátengd, meðan
samstarf þeirra varir hjer á jörð, að vanti á að vel sje að
öðru hvoru búið, líða báðir partar við það. — Það er því
óneitanlega stór þáttur að vanda vel daglegt viðurværi,
hafa það sem íjölbreyttast og gæta þess að taka með þær
fæðutegundir, sem vitað er að innihalda gnægðir af fjör-
og steinefnum, sem líkaminn þarfnast, ásamt og ekki síð-
ur en kolvetnis eggjahvítu og fitu, sem mynda aðalmagn
fæðutegundanna.
Börnin, ekki hvað síst, njóta góðs af, ef vel tekst til —
eða líða fyrir það sem miður fer. — Þau eru að byggja upp
líkama sinn, og til þess að það megi takast sem best, þurfa
þau að fá hollan og vel samsettan mat.
Nú, þegar líður að vori, hvarflar það að, að enn á ný
eru tækifærin að nálgast, að heimilin í landinu geti not-