Hlín - 01.01.1954, Blaðsíða 64
62
Hlin
sitt kvöldið hver, en svo þegar jeg hafði lesið mitt kvöld,
bað Elín mig að lesa áfram, og las jeg húslestnrinn þessi 3
ár, sem jeg var í skólanum.
Handavinna var frá 12—3 á hverjum degi, kent var að
stykkja föt meðal annars, og alt upp í baldýringu. — All-
ar urðu að taka þátt í því, sem kent var. — Skemmtileg-
astar þóttu mjer hannyrðirnar, gerði líka talsvert af þeim,
saumaði mörg falleg stykki, en á ekkert til af því nú, gaf
það hingað og þangað, en átti fátt eftir sjálf. — Þá var
sagður nógur tími til fyirr mig að bæta mjer þetta aftur,
úr því að jeg kynni það, en þá varð að snúa við blaðinu,
þá fór að koma heimilishaldið, sem hafði það í för með
sjer, að ekki var hægt að sitja við ýmislegt fitl. — Þá
byrjaði alvara lífsins, og þá var að snúa sjer að því.
Jeg minnist með gleði skólavistarinnar á Ytri-Ey. [eg
hlakkaði til að fara þangað á hverju hausti og saknaði að
verða að hverfa þaðan síðasta vorið. — En það er eins og
máltækið segir: ,,Það ræður enginn sínum næturstað.“*
Friðborg Friðriksdóttir, Borgarnesi.
* Þú spyr mig, hvaðan við sjeum ættuð, systkinin. Við erum
frá Breiðafirði og úr Breiðafjarðareyjum. — Móðir mín er fædd
í Hvammsdal í Saurbæ. — Móðir hennar var Ingibjörg Orms-
dóttir. — Ormur, faðir Ingibjargar, var tvígiftur, átti 19 böm
með fyrri konu sinni, en 8 börn með þeirri síðari. — Mjer hefur
verið sagt, að Ormur hafi riðið á þing með 12 sonu sína, og þótti
það hinn mesti viðburður. — Ut af Ormi er því komin mikil
ætt um Breiðafjörð og ættin orðin dreifð út um land víða, eins
og geta má nærri, þar sem komust upp 27 börn, að það sje stór
ætt. Hann ól þau öll upp sjálfur án sveitarstyrks.
Friðborg er systir Magnúsar bónda á Staðarfelli. — Giftist
Kristjáni Jónassyni frá Staðarhrauni.