Hlín - 01.01.1954, Blaðsíða 18
16
Hlin
sem nú er hús Búnaðarfjelags íslands. Þar liugsaði hún
sjer að reisa hús fyrir liúsmæðraskóla í Reykjavík. Af
þeirri byggingu varð ekki. — Frú Elíin hvatti frænku sína,
Hólmfríði, til utanfarar til að afla sjer sjermentunar í
kenslu í hússtjórnarskólum, svo hún gæti tekið að sjer
forystustörf fyrir þeim skóla, sem hún hugði að stofna og
stofnaði.
Hólmfríður hafði þá um tveggja ára skeið verið ráðs-
kona hjá prófastshjónunum í Görðum á Álftanesi, síra
Þórarni Böðvarssyni og frú Þórunni, konu lians. — Þegar
hún fór þaðan voru þau hjón bæði dáin. Hún lokaði þar
húsum og fór með köttinn undir hendinni inn í Hafnar-
fjörð.
Frændi Hólmfríðar, Gunnlaugur Briem, verslunar-
stjóri, bauð henni að dvelja hjá sjer meðan hún undirbjó
utanför sína.
Hólmfríður var þroskuð kona, þegar hún afrjeð að
hefja nám í húsmæðrakennaraskóla og taka að sjer for-
stöðustarf hússtjórnarskóla. Þessi ákvörðun var giftudrjúg
fyrir þjóðina. — Hólmfríður fór til Danmerkur og dvaldi
þar á þriðja ár. — ,,Jeg fór með ljetta pyngju," sagði hún
einhverntíma við þá, sem þetta ritar. — En hún var kona,
sem ætíð vann sigur á erfiðleikunum og ljet ekki bugast.
Hún komst í húsmæðraskóla Nathalíu Zahle í Kaup-
mannahöfn, er þá var talinn besti skóli íDanmörku í sinni
sjergrein. — Hún dvakli einnig á dönskum búgarði og
lærði þar meðferð mjólkur, smjör- og ostagerð. —- Auk
þessa var hún um skeið á heimili einhvers kunnasta Dana
á þeirri tíð: Andersens, forstjóra Austur-Asíufjelagsins. —
Varð sú fjölskylda tryggðarvinir hennar æ síðan. — Af
jressu heimili fór mikið orð, enda var Andersen einhver
auðugasti maður í Danmörku á Jreim árum og heimilið
glæsilegt. — Kona hr. Andersens var af íslensku bergi brot-
in, sonar-sonar dóttir hins mikla fræðimanns, Boga Bene-
diktssonar á Staðarfelli, höfundar sýslumannaæfanna. —
1907 kom H. N. Andersen etatsráð hingað til íslands í