Hlín - 01.01.1954, Blaðsíða 72
70
Hlin
hjá Rauðakrossi Islands, og hefi gegnt þeirri stöðu óslitið
síðan, að einu ári undanteknu (1947 og 1948), en þá
dvaldi jeg í háskólanum að Árósurn við heilsuverndar-
nám.
Þegar hjer var komið máli, mun jeg staldra við og skýra
nokkuð ýtarlega frá Rauðakross-störfunum, en svo mun
ritstjóri ,,Hlínar“ fyrst og fremst hafa ætlast til að jeg
gerði.
Rauðakross-hjúkrunarstarfið er sjerstætt mjög og ólíkt
öðrum. — Það er ábyrgðarstarf, órólegt, óútreiknanlegt,
en jafnframt „interessant" og sjálfstætt. — Hjúkrunarkon-
an hefur m. a. það starf á hendi, að ferðast um landið og
kenna almenningi hjálp í viðlögum, heimilisheilsuvernd
og hjúkrun, meðferð ungbarna o. fl. — Er það helst gert
að liaustinu og fram að jólum, en aðsumrinu hefur hjúkr-
unarkonan oft haft eftirlit með sumardvölum barna. —
Þó hefur það breyst á síðari árum, en margt annað komið
í staðinn. — Yfir vetrarvertíðina, frá miðjum janúar þar
til í lok maímánaðar, er hjúkrunarkonan í Sandgerði, og
hefur þar eina stúlku sjer til aðsotðar. — Þær búa í Sjúkra-
skýli Rauðakrossins, sem fyrst var tekið í notkun árið
1937. — Sjómenn víðsvegar af landinu, sem dvelja hóp-
um saman í Sandgerði hverja vetrarvertíð, fá ýmiskonar
hjálp og fyrirgreiðslu í Sjúkraskýli Rauðakrossins. — Þar
geta þeir legið rúmfastir í veikindatilfellum, fengið að-
gerð á meiðslum sínum, baðað sig o. s. frv. — Ljósböð voru
í fyrsta sinni tekin í notkun í vetur. — Legudagar, aðgerð-
ir ýmiskonar, svo og böðin, skifta hundruðum hverja ver-
tíð. — Dag og nótt er hjúkrunarkonan til taks, ef einhver
þarf hjálpar hennar með. — Læknar frá Keflavík eru enn-
fremur til viðtals í skýlinu tvisvar í viku, klukkustund í
einu. Og hægt er einnig að hringja til þeirra, ef meirihátt-
ar slys eða veikindi bera að höndum. — Vegalengd milli
Sandgerðis og Keflavíkur eru 7 km. En oft verður Rauða-
krosssystirin að taka ákvarðanir og framkvæma það, sem