Hlín - 01.01.1954, Blaðsíða 37
Hlín
35
ástríkis hjá Pálínu og Elíasi og börnum þeirra, sem höfðu
fullan skilning á þörfum hinnar öldnu konu.
Á heimili Margrjetar og Elíasar ljest hún 27. maí 1941,
fullra 92 ára gömul. Þau lijón og börn þeirra Ijetu flytja
lík hennar austur að Prestsbakka á Síðu, það var jarðsett
við leiði manns hennar og foreldra minna (faðir- minn
Ijest 1939). — Daginn sem amma var til grafar borin (4.
júní) birtist minningargrein um hana í „Morgunblaðinu"
eftir Pál Sveinssori* mentaskólakennara. Þau voru skyld,
(Eirfkur í H1 íð, móðurbróðir ömrnu, var faðir síra Sveins
í Ásum, föður Páls og þeirra merku systkina).
Síra Gísli Jónsson, lengst og síðast prestur að Mosfelli í
Grímsnesi, byrjaði prestsþjónustu við Langholtskirkju í
Meðallandi. Hann var bróðursonur ömmu og hafði hús-
næði hjá þeim fyrst, jregar hann kom í Meðalland. — Páll
Sveinsson var })á að læra þann vetu-r undir skóla hjá síra
Gísla frænda sínum. — Hann hefur því getað af eigin sjón
og tæynd lýst heimili þeirra á Steinsmýri. Hann segir svo
meðal annars: „Það var blómlegt um að litast og l)úsæld-
arlegt á Steinsmýri í búskapartíð Elíasar og Gyðríðar, og
stórbúi bjuggu þau jsar við mikla rausn og höfðingsskap.
— Þá voru búendur 5 á Syðri-Steinsmýri, og þó 6 um
skeið. — Mest kvað þá (undir aldamótin) að Jreim Elíasi
og Gyðríði í Austurbænum, Páli og Jóhönnu í Syðsta-
bænum og Stefáni og Sigríði í Króki. Hinir voru og góðir
bjargálnamenn. — Þar mátti þá kalla einskonar undra-
land, við landsuðurbrún Skaftáreldahrauns. hina iðja-
grænu sljettu með blátærum silungsvötnum og slægjum
óþrjótandi, áður en sandur og vötn grönduðu því fagra
landi, sem nú er þó í nokkrum uppgangi fyrir forgöngu
athafnabóndans í Króki, Hávarðs Jónssonar (úr Vestur-
bænum).
Heimili þeirra Elíasar og Gyðríðar mun hafa þótt eitt
hið svipmesta þar um slóðir, hjónin hin ráðdeildarsöm-
ustu og fyrirmannleg um alla hluti. — Elías var búhöldur
mikill og talinn með hinum tilkomumestu bændum á
3*