Búnaðarrit - 01.01.1991, Síða 12
Hjúskapur - búskapur
Veturinn sem Gunnar var á Laugarvatni var meðal skólasystkina hans ung
stúlka, Ásthildur Teitsdóttir frá Eyvindartungu, næsta bæ við Laugarvatn.
Með þeim tókust góð kynni og lýsir Gunnar því þannig að eftir að líða tók á
veturinn og hann hafði náð kunningsskap við sitt ljósa man hafi tíminn
flogið.
Foreldrar Ástu en svo er hún jafnan kölluð voru Teitur Eyjólfsson bóndi í
Eyvindartungu en síðar forstjóri á Eyrarbakka og kona hans Sigríður
Jónsdóttir. Ásta er fædd 9. apríl 1921.
Þau Ásta og Gunnar gengu í hjónaband 6. júní 1942 og hófu þá búskap á
Hjarðarfelli sem fyrr er sagt.
Börn þeirra eru:
1. Guðbjartur f. 7. júlí 1943, bóndi á Hjarðarfelli, kvæntur Hörpu
Jónsdóttur.
2. Högni f. 20. okt. 1944, bóndi á Hjarðarfelli, kvæntur Báru Finnboga-
dóttur.
3. Sigríður f. 22. mars 1946, búsett í Frakklandi, gift Michael Salle.
4. Hallgerður f. 13. des. 1948, búsett í Stykkishólmi, gift Sturlu Böðvars-
syni.
5. Teitur f. 30. mars 1954, verkfræðingur í Reykjavík, kvæntur Guðbjörgu
Björnsdóttur Bjarman.
6. Þorbjörg f. 23. nóv. 1962, búsett á Egilsstöðum, gift Erlendi Steinþórs-
syni. Barnabörn þeirra Ástu og Gunnars eru nú 17.
Búskaparsaga Gunnars og Ástu verður ekki rakin hér til neinnar hlítar.
Fram til 1950 að Guðbjartur dó bjuggu þeir feðgar félagsbúi. Síðan hafði
Gunnar einn mest af búskapnum á jörðinni þar til synir hans Guðbjartur og
Högni komu að honum upp úr 1960, en eðlilega lagðist búskapurinn æ
meira á Ástu og börnin eftir því sem félagsmálastörf Gunnars jukust.
Gunnar taldi sig hafa formlega látið af búskap í árslok 1982. Eftir það hafa
þeir Guðbjartur og Högni búið félagsbúskap á allri jörðinni.
Gunnar hóf búskap sinn einmitt rétt áður en véla- og ræktunarbyltingin
mikla hófst að lokinni heimsstyrjöldinni síðari. Strax og tæknin leyfði hóf
hann mikla framræslu og ræktun sem gjörbreytti jörðinni. Einkum var það
framræsla hins víðlenda en frjósama mýrlendis jarðarinnar sem gjörbreytti
aðstæðum. Tún eru nú nær 70 hektarar og byggingar allar af bestu gerð,
fjárhús fyrir 620 fjár, fjós fyrir 40 gripi og heygeymslur sem til þessa svara.
Hjarðarfellsféð er löngu þekkt sem vel ræktaður stofn og ber m.a. vitni
um búmenningu Gunnars og sona hans.
X