Búnaðarrit - 01.01.1991, Page 27
Steinþór Gestsson
Hjörtur E. Pórarinsson
Magnús Sigurðsson
Skýrsla
um störf Búnaðarfélags íslands 1990
Stjórn félagsins
Stjórn félagsins, sem kjörin var af Búnaðar-
þingi 1987, er þannig skipuð: Hjörtur E.
Eórarinsson, bóndi á Tjörn, formaður,
Magnús Sigurðsson, bóndi á Gilsbakka,
varaformaður, og Steinþór Gestsson, fyrr-
verandi alþingismaður og bóndi á Hæli, rit-
ari. Varamenn þeirra eru: Jón Helgason,
alþingismaður í Seglbúðum, Sigurður
Þórólfsson, bóndi í Innri-Fagradal, og Sig-
geir Björnsson, bóndi í Holti.
Endurskoðendur félagsins eru Sigurður J.
Líndal, bóndi á Lækjamóti, kosinn af Búnað-
arþingi, en varamaður hans Bjarni Guðráðsson, bóndi í Nesi, og Guðmund-
ur Sigþórsson, skrifstofustjóri, stjórnskipaður.
Stjórnin hélt á árinu 18 fundi og bókaði 233 ályktanir og afgreiðslur mála.
Starfsmenn og starfsgreinar
Hér verður getið starfsfólks Búnaðarfélags íslands og þeirra breytinga, sem
orðið hafa á starfsliði þess á árinu.
Nánar kemur fram í starfsskýrslum hér á eftir að hvaða störfum hver og
einn hefur unnið.
Jónas Jónsson,
búnaðarmálastjóri
1