Búnaðarrit - 01.01.1991, Side 40
júlí. Formaður ávarpaði báðar þessar samkomur. Undirritaður sat aðalfund
Skógræktarfélags íslands á Fiúðum 31. ágúst til 2. sept. Flann flutti erindi
fyrir nemendur á Flvanneyri 23. apríl um starfsemi B.í. og leiðbeininga-
þjónustuna, erindi um gróðurverndarmál á ráðstefnu um þau mál á Húsavík
17. mars og erindi um þátt landbúnaðar- og leiðbeiningaþjónustunnar í
byggðamálum á ráðstefnu byggðanefndar forsætisráðherra í Borgarnesi 8.
október. Pá sat hann aðalfund Hrossaræktarsambands íslands á Akureyri i
20. október og fund hrossaræktarnefndar, sem þar var haldinn daginn áður,
aðalfund Félags hrossabænda á Löngumýri í Skagafirði 16. nóvember,
aðalfund Æðarræktarfélags íslands í Viðey 10. nóvember, aðalfund Sam-
bands íslenskra loðdýraræktenda í Bændahöllinni 13. nóvember og aðal-
fund Ferðaþjónustu bænda á sama stað 30. nóvember. Ýmsar lengri eða
skemmri ferðir voru farnar.
Utanlandsferðir. Undirritaður sótti stjórnarnefndarfund NBC í Kaup-
mannahöfn 29.-30. mars ásamt formanni og ritara Islandsdeilar, Hauki
Halldórssyni og Hákoni Sigurgrímssyni. Þar var einkum fjallað um fram-
vindu landbúnaðarþáttarins í GATT-viðræðum og afstöðu bændasamtak-
anna á Norðurlöndum til þeirra. Þarfengum við, íslensku fulltrúarnir, sem
á öðrum fundum á vegum NBC betra yfirlit yfir þessi mál en kostur hefur
verið á hér heima, þar sem stjórnarvöld hafa allt fram undir síðustu mánuði
látið sem um væri að ræða mál, sem litlu skipti bændur og samtök þeirra. t
Alþjóðaþing bœnda í Þrándheimi 2.-8. júní. Af Islands hálfu sóttu þetta
þing: Haukur Halldórsson frá Stéttarsambandinu, Gísli Karlsson og Hörð-
ur Harðarson frá Framleiðsluráði, Óskar Gunnarsson frá mjólkuriðnaðin-
um og undirritaður frá B.í. Nokkuð hefur verið sagt frá þessu þingi m.a. í
Frey, og eru ekki tök á að bæta við það hér.
Dagana 26.-28. október sat undirritaður ráðstefnu á vegum Sambands
um fullorðinsfrœðslu á Norðurlöndum, sem haldin var í Helsingfors í
Finnlandi og fjallaði mest um, á hvern hátt þessi samtök, sem tengd eru
bændasamtökum viðkomandi landa, gætu stuðlað að þróunarmálum í
Eystrasaltslöndunum. Þarna voru einnig fulltrúar frá Eistlandi og Lett-
landi. Stéttarsamband bænda er formlegur aðili að þessum samtökum um
fullorðinsfræðslu, en B.I. hefur í huga að taka þátt í þeim.
Erlendir gestir 1
Stéttarsamband bænda og Búnaðarfélagið buðu framkvæmdastjóra Noregs
Bondelag, Amund Venger, að koma hingað til lands til að halda erindi um
áhrif fyrirhugaðs GATT-samkomulags á landbúnað í Noregi og öðrum
Norðurlöndum, sem búa við svipaðar aðstæður. Boðað var til fundar um
GATT-viðræðurnar og stöðu íslands í ljósi þeirra í Súlnasal síðdegis 25.
október. Ræðumenn voru auk Vengers, Haukur Halldórsson og Jón
Sigurðsson viðskiptaráðherra í fjarveru utanríkisráðherra. Auk framsögu-
14