Búnaðarrit - 01.01.1991, Síða 82
var öðrum þræði farin til hrútakaupa fyrir sæðingarstöðvarnar. Ég sótti
aðalfund Landssamtaka sauðfjárbænda á Hrafnagili 26.-27. ágúst. í nóv-
ember mætti ég á 6 bændafundum og flutti erindi um sauðfjárrækt,
jafnframt því sem kynntir voru sæðingarhrútar, sem í boði voru á viðkom-
andi stöðvum. Fundirnir voru:
13. nóv. hjá Bændaklúbbi Eyjafjarðar á Akureyri.
14. nóv. hjá Bsb. Suður-Þingeyinga í Ljósvetningabúð.
14. nóv. hjá Bsb. Norður-Þingeyinga á Kópaskeri.
20. nóv. hjá formönnum fjárræktarfélaga á Suðurlandi í Aratungu.
20. nóv. hjá Bsb. Vestur-Húnavatnssýslu á Laugarbakka.
21. nóv. hjá Bsb. Skagfirðinga á Sauðárkróki.
Flestir þessir fundir voru vel sóttir og bæði gagnlegir og ánægjulegir.
Auk ofangreindra ferðalaga sótti ég ótal fundi í Reykjavík á árinu, þ.m.t.
ráðunautafund og ráðstefnu um fóðrun og beit búfjár í minningu Gunnars
Ólafssonar.
Utanlandsferðir. Dagana 16.-21. október sótti ég fund sauðfjárræktar-
ráðunauta á Norðurlöndum (Internorden), sem að þessu sinni var haldinn í
Gol, Hallingdal í Noregi. Með í ferðinni var Hjalti Gestsson. Þessir fundir
eru haldnir annað hvert ár og í löndunum til skiptis. Nú kom í fyrsta sinn
sérstakur fulltrúi frá Færeyjum. Þarna var gerð grein fyrir helztu þróun í
kynbótastarfi og rannsóknum, er varða sauðfjárkynbætur á Norðurlönd-
um. Fyrirferðarmestar voru umræður um skýrsluhald, sem hefur verið að
taka breytingum, einkum í Noregi og Svíþjóð, svo og um kynbætur á
kjötgæðum. Norðmenn og Finnar hafa nýlega hafið tilraunir með notkun
hjóðmynda til mælinga á fitu- og vöðvaþykkt lamba. Norsku tilraunirnar
eru mjög líkar þeirri rannsókn, sem hófst á Hesti s.l. haust, enda ákváðum
við Olav Husabö, sem stýrir þessum rannsóknum, að taka upp samráð og
e.t.v. frekari samvinnu um framhaldið. Kynbætur, er miða að aukinni
vöðvasöfnun og betra vaxtarlagi, njóta nú ákveðins forgangs í Noregi,
einkum í Spaelsau kyninu, sem yfirleitt er mjög gisbyggt og holdrýrt. Á
fundinum var settur á laggirnar samstarfshópur með einum fulltrúa frá
hverju Iandi, sem vinna skal sérstaklega að þessum kynbótaþætti á næstu
árum.
í ferðinni skoðuðum við sláturhús og fengum sérstaka leiðsögn um
kjötmat og ullarmat í Noregi, heimsóttum formann Sauðfjár- og geitarækt-
arsambandsins, Arvid Brun, og skoðuðum bú hans, en ferðinni lauk með
heimsókn að Ási og leiðsögn Jóns Nedkvitne um fjárhús og geitahús, þar
sem hann greindi jafnframt frá helztu rannsóknarverkefnum síðustu ára.
56