Búnaðarrit - 01.01.1991, Blaðsíða 118
Tafla 2 sýnir fjölda alirefa og hvolpa 1980-1990.
Hvolpar Þungi
á paraða högnahv.
Ár Læður Högnar Hvolpar læðu 15. okt/kg
1980 ..................... 210 70 1.092 5,4
1981 ..................... 628 210 4.175 6,6 8,34
1982 ................... 1.544 499 10.300 6,7 8,50
1983 ................... 3.948 1.216 25.338 6,4
1984 ................... 6.096 1.980 32.962 5,4
1985 ................... 9.048 2.770 53.384 5,9
1986 .................. 16.170 4.042 84.000 5,2
1987 .................. 18.000 4.500 88.000 4,9
1988 .................. 16.400 3.950 103.200 6,3
1989 ................... 7.400 2.400 28.000 3,9
1990 ................... 5.590 2.000 18.400 3,3
Sýningar. Aðeins ein skinnasýning var haldin á árinu, og var hún hjá
loðdýrabændum á Vesturlandi, sett upp í Borgarnesi. Mikil framför hefur
orðið á skinnaframleiðslunni og verkun þeirra milli ára. Næstum er hægt að
segja, að bestu skinnin fyrir þremur árum séu svipuð þeim lélegustu í ár,
hvað minkaskinnin varðar. Minni munur er á refaskinnunum, en samt er
hann verulegur.
Fundir og ferðalög. Tvo fundi sótti ég hjá loðdýrabændum á Suðurlandi
og aðra tvo hjá Hagfeldi, og þá sat ég aðalfund S.Í.L. Eina ferð fór ég um
Reykjanes og Suðurland í sumar til að hitta bændur og ræða við þá um
búskapinn og stöðuna á skinnamörkuðum o.fl. í nóvember og byrjun
desember flokkaði ég refi og minka á Reykjanesi, A.-Skaftafellssýslu og
aðeins á Suðurlandi. I þessum flokkunarferðum reyndi ég að leiðbeina um
meðferð skinna og verkun þeirra, stillingu tækja o.fl. því viðkomandi.
Önnur störf. Dagana 23. sept. til 11. okt. var ég að dæma hrúta á
hreppasýningum í Borgarfirði, Skagafirði og aðeins í A.-Barðastrandar-
sýslu.
Samstarfsfólki mínu, stjórn Búnaðarfélagsins og búnaðarmálastjóra
þakka ég gott og ánægjulegt samstarf á árinu.
92