Búnaðarrit - 01.01.1991, Page 128
VSK skýrslu. Komið var til fjölda garðyrkjubænda vegna fyrirhugaðrar
skuldbreytingar vegna greiðsluerfiðleika.
Önnur störf. Hagþjónusta landbúnaðarins hóf starfsemi sína á árinu, og
var ég boðaður á flesta stjórnarfundi, þó að ég sé aðeins varamaður í stjórn
stofnunarinnar, en sá háttur var hafður á að boða einnig varamenn.
Hagþjónustan mun njóta góðs af því átaksverkefni, sem nú er í gangi í
eflingu búreikningahalds hjá búnaðarsamböndunum. Hagrænar rannsókn-
ir munu fara fram úr þeim efnivið hjá Hagþjónustunni auk almennrar
hagskýrslugerðar um landbúnaðinn. Á stjórnarfundum hef ég lagt áherslu
á, að árið 1990 skyldi notað til að koma hagskýrslugerðinni í gott horf, en
árið 1991 verði unnið meira að hagrannsóknum, þegar efniviður úr
búreikningum bænda fer að berast stofnuninni. Á hátíðarfundi Hagþjón-
ustunnar 23. apríl að Hvanneyri flutti ég erindi um búreikninga í nútíð og
framtíð. Þrjú önnur erindi voru flutt.
Fjárhagskönnunarnefnd starfaði lítið á árinu. Unnið var að undirbúningi
að skuldbreytingu hjá garðyrkjubændum, sem hafa átt í greiðsluerfiðleik-
um. Fjármögnun þeirrar skuldbreytingar hefur ekki tekist.
Samstarfsfólki þakka ég samstarfið á árinu.
Ritsmíðar 1990:
Framleiðslukostnaður á búvörum og möguleikar til hagræðingar. Ráðunautafundur 1990, 78-
87.
Spurningar og svör um virðisaukaskatt í landbúnaði. Freyr, 1990 (3), 95-100
Bókhald fyrir bændur. Ráðunautafundur 1990, 190-210.
Arðsemi í bleikjueldi. Ráðunautafundur 1990, 286-297.
Leiðbeiningar um bókhald. Freyr 1990 (2), 55-67.
Skattframtal í ár. Freyr 1990 (4), 142-151.
Búbót. Leiðbeiningar fyrir notendur, 1990. Fjölrit 31 bls.(Ásamt Ingólfi Helga Tryggvasyni).
Leiðbeiningar um bókhald fyrir bændur, 1990. Fjölrit 20 bls.
102