Búnaðarrit - 01.01.1991, Síða 134
Búreikningastofa landbúnaðarins
Jóhann Ólafsson
Starfsemin takmarkaðist að mestu við að
ljúka uppgjöri reikninga ársins 1989, en eins
og getið var í síðustu starfsskýrslu, var í
ársbyrjun 1990 ákveðið, að búnaðarsam-
böndin og Hagþjónusta landbúnaðarins
tækju við búreikningahaldi frá þeim tíma.
Árið 1989 fullgerðu 138 bændur búreikn-
inga í samvinnu við búreikningastofuna. Var
þeim, ásamt fáeinum, sem ekki luku upp-
gjöri, sent skattuppgjör til notkunar við gerð
landbúnaðarframtals í byrjun apríl. Fylgdi
því tölvuunnin fyrningaskýrsla í flestum til-
fellum. Sótt var um framtalsfrest til 15. apríl, og fékkst hann án undantekn-
inga. Endanlegu uppgjöri lauk um miðjan júlí, og var skýrslu til verðlags-
nefndar búvara skilað í lok mánaðarins.
Eftirtaldir aðilar unnu að uppgjöri reikninga ársins 1989: Jóhann Ólafs-
son fyrir Dalasýslu, Vestfirði, V.-Húnavatnssýslu og Múlasýslur (41 reikn-
ingur); Pétur K. Hjálmsson fyrir Borgarfjörð, Mýrar, Snæfellsnes, A.-
Húnavatnssýslu, Skagafjörð, Eyjafjörð og S.-Þingeyjarsýslu (52 reikning-
ar), Porbjörg Á. Oddgeirsdóttir fyrir Árnes-, Rangárvalla- og Skaftafells-
sýslur (42 reikningar). Benedikt Björgvinsson, ráðunautur, sá um reikninga
í N.-Þingeyjarsýslu (3).
Arsskýrsla o.fl. Samkvæmt lögum um búreikningastofuna ber að birta
yfirlitsskýrslu um niðurstöður búreikninga ár hvert. Ársskýrsla fyrir árið
1989 kom út 9. október, 59 blaðsíður að stærð og prentuð í 1000 eintökum.
Fjölskyldutekjur af landbúnaði voru að meðaltali kr. 1.246.094 (hækkun
frá fyrra ári 11,3%) og auk þess kr. 104.565 í launatekjur hjóna fyrir vinnu
utan bús. Hækkun fjölskyldutekna var mest á sauðfjárbúunum 14,4%, á
kúabúunum 11,3% og 9,6% á blönduðu búunum.
Samanburðarskýrsla yfir framlegð á árskú og vetrarfóðraða kind var gerð
á sama hátt og áður, og voru búin flokkuð í fjóra flokka eftir fjölda árskúa
og fimm flokka eftir fjölda vetrarfóðraðra kinda.
Uppgjör og önnur tölvuvinnsla fór fram í tölvu bændasamtakanna og
108