Búnaðarrit - 01.01.1991, Page 136
Búreikningar, frostmerkingar
Pétur K. Hjálmsson
Búreikningar. Eins og undanfarandi ár
vann ég við að stemma af og lykilfæra bú-
reikninga þeirra bænda, sem ég hef haft
umsjón með. Þeim hefur fækkað verulega og
sérstaklega eftir að uppvíst varð um lok
búreikningastofunnar. Sent var út bráða-
birgðauppgjör vegna skattframtals, og síðan
var tekið til við að Ijúka ársuppgjöri, og var
því að mestu lokið í júnímánuði. Frá 1. júlí
var starfi mínu lokið sem fulltrúi við Búreikn-
ingastofuna, eftir rúmlega 12 ára starf. Við
þau starfslok vil ég færa þeim bændum, sem
ég hef starfað með á þessum árum, fyrir sérstaklega ánægjulegt samstarf.
Frostmerkingar. Lítil aukning hefur orðið á merkingum á árinu. Mest
hefur aukning orðið við merkingar unghrossa og langmest í merkingum
folalda. AIls merkti ég 752 hross á árinu. í apríl sl. óskaði Búnaðarsamband
Suðurlands eftir því að fá að verða virkari þátttakandi í frostmerkingastarf-
inu, þannig að þeir gætu sjálfir séð um að merkja þá stórgripi, sem eftir væri
leitað. Ég ræddi þetta mál við stjórn Búnaðarfélags íslands, og fól hún mér
að kenna manni frá þeim frostmerkingar, og hefði Búnaðarfélag íslands
yfirumsjón með þesssum merkingum og allar skráningar verði hér hjá
Búnaðarfélagi íslands. 16. maí sl. kenndi ég Helga Eggertssyni, ráðunaut
B.S., frostmerkingu hrossa, og jafnframt var gerð tilraun með að merkja
kálfa, bæði ungkálfa og eldri. Merking kálfanna tókst vel, og eru númerin
mjög vel læsileg. Kennslan fórfram aðTóftum íStokkseyrarhreppi, og voru
gripir bóndans, Bjarkars Snorrasonar, notaðir við kennsluna. Síðla sumars
voru keypt frostmerkingaráhöld, hjá Kryo Kintics, sams konar tæki og ég
nota, þ.e. töiustöfum er breytt í rétthyrninga og samsíða strik. Mér er
kunnugt um, að Helgi hefur merkt um 200 hross hjá nokkrum bændum á
svæði B.S., og óska ég honum farsældar í starfi.
Nú við starfslok sem fastráðinn starfsmaður sem ráðunautureftir tæplega
fjörutíu ára starf er margs að minnast. Efst í huga kemur þakklæti til allra
samstarfsmanna minna á liðnum árum fyrir góð kynni og ánægjulegt
samstarf.
Ég er ekki að kveðja B.í. núna, þar sem ég verð áfram að hluta til sem
110