Búnaðarrit - 01.01.1991, Page 141
Tölvuþjónustan
Halldór Árnason
Starfið á árinu var með svipuðu sniði og verið
hefur undanfarin ár. Störfin hafa verið fjöl-
breyttað vanda, en ég læt nægja að nefna þau
helstu.
Hrossarœkt. Mikill tími fór á árinu í
hrossaræktina. Fyrri hluti ársins fór í undir-
búning og útreikninga kynbótaeinkunna, en
það gekk vonum framar. í páskavikunni kom
svo Þorvaldur Árnason og vann með okkur
Kristni Hugasyni við yfirferð útreikninga og
endurbætur á kerfinu, sem miða að því að
gera það þjálla og fljótvirkara í notkun. Þá
fór talsverður tími í að aðstoða Kristin við frágang á gögnum úr hrossarækt-
inni til útgáfu. Gengið var frá gögnum og forritum fyrir búnaðarsamböndin
til að nota við kynbótasýningar. Að lokinni forskoðuninni voru gögn
yfirfarin og reiknaðar nýjar kynbótaeinkunnir til notkunar á Landsmótinu á
Vindheimamelum. Þá gerðum við Kristinn samanburð á einkunnum
áranna 1989 og 1990, ogsatégíframhaldi af þvífund Hrossaræktarnefndar í
endaðan júní. Að loknum haustsýningum voru gögn yfirfarin og sameinuð
og enn á ný reiknaðar kynbótaeinkunnir. Vegna þeirra deilna, sem urðu urn
kynbótadómana, þá eyddi ég miklum tíma í september og október í að
yfirfara og tlokka niðurstöður sýninganna 1987-1990 til þess að gera
samanburð milli þessara ára. Með þær niðurstöður mætti ég svo á fund
Hrossaræktarnefndar, sem haldinn var á Akureyri í október, og aðalfund
Hrossaræktarsambands íslands. Niðurstöður samanburðarins voru í fáum
orðum þær, að þeir, sem stóðu fyrir upphlaupinu með kynbótadómana,
hafa annað hvort ekki skilið heimadæmin sín eða reiknað þau vitlaust,
nema hvort tveggja sé. Breytingin á notkun einkunnaskalans hefur tekist
vonum framar og lofar góðu um framhaldið. Þá mætti ég á ársþing LH á
Húsavík í endaðan október. Seinni hluta ársins var svo hafin skipuleg
skráning eldri gagna úr hrossaræktinni.
Bœndabókhaldid. Vinna mín við bændabókhaldið fólst mest í því að setja
upp kerfið hjá mönnum og svara fyrir og leysa úr vandamálum, sem upp
hafa komið í sambandi við vinnsluna, ásamt því að reyna að gefa góð ráð í
sambandi við kerfið.
115