Búnaðarrit - 01.01.1991, Page 143
Veiðistjóraembættið
Páll Hersteinsson
Við stofnun Umhverfisráðuneytis s.l. vor
fluttist yfirstjórn embættisins frá Landbúnað-
arráðuneyti til hins nýja ráðuneytis. Búnað-
arfélag íslands hafði þó áfram umsjón með
fjármálum þess, og Landbúnaðarráðuneytið
sá um millifærslur á hlutdeild ríkissjóðs í
kostnaði við refa- og minkaveiðar út árið.
í janúar hóf nýr starfsmaður, Arnór Þórir
Sigfússon, störf við veiðistjóraembættið, en
hann varði doktorsritgerð sína um líffræði
fýlsins á árinu. Helstu verkefni Arnórs eru
rannsóknir á stofnstærðum og varpútbreiðslu
máfa, eins og hann greinir frá í starfsskýrslu sinni. Verður ekki nánar fjallað
um þær hér, heldur vísað til skýrslu Arnórs.
Við stofnun Umhverfisráðuneytis fluttist umsjón hreindýrastofnsins
þangað frá Menntamálaráðuneyti. Umhverfisráðherra fól síðan veiði-
stjóraembættinu umsjón stofnsins í júní s.l. og skipaði mig jafnframt
formann starfshóps, sem fjallaði um hreindýraveiðireglurfyrir haustið 1990
og leiðir til þess að koma í veg fyrir skógskaða af völdum hreindýra.
Nefndin lauk störfum 25. júlí og skilaði áliti til umhverfisráðherra. Að
tillögu nefndarinnar voru hreindýraveiðar auknar frá því, sem verið hafði
nokkur undanfarin ár, en helsta nýmælið var, að arður af sölu kjöts af 100
hreindýrum var látinn standa undir rannsóknum á hreindýrum og tilraunum
með rafgirðingar í samvinnu við Skógrækt ríkisins o.fl., sem hófust strax í
haust. Rannsóknum á þessu sviði verður haldið áfram næstu ár, og
væntanlega mun hluti arðs af hreindýrum standa undir hluta kostnaðar við
þær framvegis.
I samvinnu við Tilraunastöð Háskólans í meinafræði tók veiðistjóraem-
bættið þátt í rannsóknum á tíðni og útbreiðslu Salmonellusmits í máfum og
hröfnum um landið. Verkefni þessu var hrint af stað í kjölfar faraldurs, sem
gekk í hrossum og fuglum á afmörkuðu svæði á Suðurlandi. Því mun ljúka á
fyrri hluta árs 1991.
Undirritaður er um þessar mundir formaður nefndar á vegum Umhverf-
isráðuneytis, sem hefur það hlutverk að semja frumvarp um stýringu villtra
dýrastofna, og á nefndin að ljúka störfum fljótlega. Þá er ég formaður
starfshóps á vegum sama ráðuneytis, sem hefur það hlutverk að semja nýjar
reglur um framkvæmd hreindýraveiða.
117