Búnaðarrit - 01.01.1991, Síða 148
Ég tók einnig þátt í rannsóknum á tíðni salmonellasmits í máfum og
hröfnum, sem eru samvinnurannsóknir Veiðistjóraembættisins og Til-
raunastöðvar Háskólans í meinafræði.
Skipulegar tilraunaveiðar á varpfuglum fóru fram í máfavörpum á
höfuðborgarsvæðinu, og tók ég þátt í þeim ásamt Þorvaldi Björnssyni og
fleirum, og einnig fórum við Þorvaldur á Keflavíkurflugvöll til að líta á
máfaveiðar þar. Þá var einnig staðið að útburði á svefnlyfi á sorphaugunum
í Gufunesi í haust, m.a. til að meta kostnað og árangur slíkra aðgerða. Þá
var nokkuð um, að hringt væri út af máfum, m.a. frá fiskeldisfyrirtækjum,
og leitað ráða til að halda þeim burtu.
Um mánaðamótin september-október varði ég doktorsritgerð mína, um
unga fýla, við háskólann í Aberdeen í Skotlandi og sótti um leið ráðstefnu,
sem fjallaði um vistfræði og iandnotkun. Þá flutti ég fyrirlestur um vistfræði
og lífshætti gæsa á íslandi fyrir Skotveiðifélag Suðurnesja og fyrirlestur um
rannsóknir mínar á ungum fýlum hjá Líffræðifélagi íslands. Einnig hef ég
kennt á námskeiðum fyrir umsækendur byssuleyfa á vegum Lögreglunnar í
Reykjavík og fjallað þar um náttúruvernd, lög um dýr og dýraveiðar,
fuglagreiningar og stofnvistfræði. I desember varð ég ritari nefndar á vegum
umhverfisráðuneytisins, sem semja á frumvarp um stýringu villtra dýra-
stofna hérlendis, og er Páll Hersteinsson formaður nefndarinnar.
Ég vil að lokum þakka Páli Hersteinssyni, Þorvaldi Björnssyni og
starfsmönnum Búnaðarfélags íslands gott samstarf á árinu. Einnig vil ég
þakka þeim fjölmörgu, sem veittu mér aðstoð eða upplýsingar í sambandi
við rannsóknirnar.
Birtar greinar:
Greiningar á íslenskum máfum. Fréttabréf veiðistjóru 6:38-47.
Studies of pre-breeding Fulmars (Fulmarus glacialis), their recruitment to breeding populati-
ons and intermittent breeding. Ph.D. thesis, 212 p., University of Aberdeen 1990.
Varpstofn sílamáfs og tilraunaveiðar á máfum á suðvesturlandi árið 1990. Sérrit veiðistjóra-
embættisins nr. 1, 20 bls. (Ásamt Páli Hersteinssyni og Þorvaldi t>. Björnssyni)
122