Búnaðarrit - 01.01.1991, Page 155
Landgræðsla ríkisins
Sveinn Runólfsson
Ársins 1990 verður minnst af okkur Iand-
græðslumönnum vegna óvenju góðrar gróðr-
artíðar og mildrar veðráttu. Það voraði að
vísu seint um allt land, og snjóa tók seint upp
á hálendinu, enda mikið fannfergi sérstak-
lega á sunnanverðu landinu. Snjórinn hlífði
þó gróðri og rakinn, sem hann skildi eftir í
jörð, kom sér vel, því að á Suðurlandi var
hlýtt og einstaklega þurrt alveg fram í miðjan
júlí, en síðan stytti varla upp það sem eftir var
af sumri. Annars staðar á landinu var úrkom-
an jafnari og verðurfar alls staðar milt.
Uppblástur og gróðureyðing á landinu hefur því verið með minnsta móti
miðað við mörg undanfarin ár. Það minnir okkur þó á, að enn er gróðurfar
og gróðureyðing meira háð veðráttunni en uppgræðslu- og gróðurverndar-
aðgerðum okkar, sem byggjum þetta fagra, en hrjóstuga land.
Landgræðslumál voru að venju mikið í brennidepli ífjölmiðlum. Umfjöll-
un þeirra var þó jákvæðari en oft áður hvað varðar beitarmál. Forráðamenn
þjóðarinnar vitnuðu óspart til gróðurverndarhugsjóna, en ekki hefur það
skilað neinum hækkunum í fjárframlögum af hálfu hins opinbera til þessa
málaflokks, nema síður sé.
Á árinu gaf Landgræðslan út árbókina Grœðum ísland 1989-1990 með
svipuðu sniði eins og áður. í árbókinni er fjöldi greina um landgræðslu og
gróðurvernd, og hefur þessum bókum verið vel tekið. Við leggjum mikla
áherslu á að auka fræðslu- og kynningarstarf stofnunarinnar og teljum það
hornstein landgræðslustarfsins í framtíðinni.
íslenska melgresið er enn sem fyrr burðarásinn í stöðvun sandfoks og
jarðvegseyðingar, þ.e. frumverkefni Landgræðslunnar. Hin nýja aðstaða í
fræverkunarstöðinni gerði okkur kleift að þurrka og fullhreinsa ágætt
melfræ, sem var safnað í landgræðslugirðingum haustið 1989.
Á liðlega áttatíu ára starfsferli Landgræðslunnar hefur nánast öllu
melfræi verið handsáð vegna þess, hve óhreinsað melfræ var erfitt í
meðförum og hentaði illa til vélsáningar. í maí s.l. fengum við nýja, öfluga
sáðvél frá Nýja Sjálandi til þess að sá húðuðu melfræi og lúpínufræi. Nýja
129