Búnaðarrit - 01.01.1991, Síða 161
Skipting á áburði og frœi:
1990 1989
Landgræðslugirðingar............................... 368,00 tonn 368,00 tonn
Beitilönd........................................... 76,00 tonn 120,00 tonn
Afréttarlönd....................................... 608,00 tonn 656,00 tonn
Samtals 1052,00 tonn 1144,00 tonn
Alls var dreift úr flugvélum Landgræðslu ríkisins 1395,63 tonnum á áburði
og fræi 1990, en 1466,77 tonnum 1989, sem skiptist þannig:
1990 1989
Landgræðslugirðingar......................... 518,77 tonn 37,2% 551,33 tonn 37,6%
Beitilönd.................................... 254,86 tonn 18,3% 208,00 tonn 14,2%
Afréttarlönd................................. 608,00 tonn 43,5% 656,00 tonn 44,7%
Ræktuð lönd................................ 6,00 tonn 0,4% 12,00 tonn 0,8%
Annað...................................... 8,00 tonn 0,6% 39,44 tonn 2,7%
Samtals 1395,63 tonn 100% 1466,77 tonn 100%
Áburðar- og fræmagnið, sem dreift var 1990, er aðeins minna en 1989, og
þó varð aðeins aukning á því magni, er dreift var vegna Blönduvirkjunar og
kostað er af Landsvirkjun.
Sé sá áburður, sem Landsvirkjun greiðir vegna Blönduvirkjunar, dreginn
frá, verður áburðarmagnið, sem dreift er fyrir Iandgræðslufé, um 1015
tonn, en mest var dreift árið 1975 eða rúmlega 3100 tonnum.
Eins og fram kemur í töflu, er hlutdeild landgræðslugirðinga í áburðar-
dreifingu komin niður í 37,2%, sem stafar af því, að landgræðslufé verður
sífellt ódýrara, en áburðardreifing á afrétti, beitilönd og ræktuð lönd er að
hluta til kostuð af bændum.
Eins og áður starfaði ég sem framkvæmdastjóri Fóður- og fræframleiðsl-
unnar í Gunnarsholti. Graskögglar hafa ekki verið framleiddir í Gunnars-
holti undanfarin fjögur sumur, en húsnæði Fóður- og fræframleiðslunnar er
notað af Landgræðslunni. Óvíst er, hvort graskögglaframleiðsla hefst á ný,
þannig að lítill tími fer orðið í þetta starf.
Að venju var nokkuð um fundarhöld, en annars hef ég mest unnið við
skrifstofustörf yfir vetrartímann. Allnokkur tími fór í að sinna málum vegna
landbrots af völdum fallvatna, en yfirstjórn þeirra mála var flutt til
Landgræðslunnar með lagabreytingum 1979.
Ég starfaði í fagnefnd á vegum Átaks í landgræðsluskógum. Einnig sat ég
fundi í stjórn Landgræðslusjóðs sem fulltrúi landgræðslustjóra.
Eins og áður hafði ég skrifstofuaðstöðu að Laugavegi 120 í Reykjavík, en
þar eru auk mín Andrés Arnalds og Hafdís Hauksdóttir.
135