Búnaðarrit - 01.01.1991, Page 205
Mál nr. 18
Erindi Búnaðarsambands Austur-Húnavatnssýslu um sölu framleiðslurétt-
ar.
Afgreitt með máli nr. 24.
Mál nr. 19 og 30
Erindi Búnaðarsambands Austur-Húnavatnssýslu um kostnað við girðingar
með vegum og Erindi stjórnar Búnaðarfélags íslands um búfé á vegsvœðum.
Málin afgreidd með eftirfarandi ályktun, sem samþykkt var með 18
samhljóða atkvæðum:
Búnaðarþing leggur þunga áherzlu á, að vegna þeirrar slysahættu, er
hlotizt getur af búfé á vegsvæðum, er brýnt að finna varanlega lausn á því
máli. Þess vegna vill Búnaðarþing beita sér fyrir endurskoðun girðingarlaga
nr. 10/1965 með það að markmiði, að Vegagerð ríkisinssjái um uppsetningu
og viðhald girðinga með fram landsbrautum og stofnbrautum, sem liggja
um heimalönd bújarða.
Girðingar með heimreiðum og sýsluvegum annist bændur og sýsluvega-
sjóðir. Þingið ítrekar álit sitt frá 1989 um búfé á vegsvæðum (mál nr. 3).
Þingið felur stjórn Búnaðarfélags íslands að fylgja þessu máli fram.
GREINARGERÐ:
Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerð ríkisins er í fjárlögum varið 22
milljónum króna til uppgræðslu og girðinga með vegum. Þar af fara um 10
milljónir króna í uppgræðslu, en tæpar 11 milljónir króna í girðingar, en
óafgreiddar kröfur um girðingar eru 633 km og 36 ristarhlið, sem kosta
u.þ.b. 264 millj. króna. Augljóst er því, að vandamálið búfé á vegsvœðum
verður ekki leyst nema með stórauknum fjárveitingum til þeirra mála.
Höfuðáherzla verði lögð á vegi með bundnu slitlagi, því að þar er hættan
mest vegna hraða umferðar. Með öllu er óraunhæft að ætla bændum
lagningu eða viðhald veggirðinga, því að hluta bænda yrði með því móti gert
að sjá um slysavarnir af völdum búfjár á vegum landsins. Nauðsynlegt er, að
nú þegar verði hindraður frjáls aðgangur búfjár að stofnbrautum með því að
girða veggirðingar og beitarhólf eftir því, sem við á. Verði það gert í
samráði og samvinnu við bændur og sveitarstjórnir.
Mál nr. 20
Erindi Búnaðarsambands Borgarfjarðar um landamerki.
Málið afgreitt með eftirfarandi ályktun, sem samþykkt var nteð 23 sant-
hljóða atkvæðum:
179