Búnaðarrit - 01.01.1991, Page 208
Mál nr. 22
Erindi Búnaðarsambands Suðurlands varðandi fjárfestingu útlendinga í
íslenzkum atvinnuvegum.
Málið afgreitt með eftirfarandi ályktun, sem samþykkt var með 23 sam-
hljóða atkvæðum:
Búnaðarþing beinir þeirri eindregnu áskorun til Alþingis, að við lögfest-
ingu á frumvarpi til laga um fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri verði
hvergi slakað á þeim takmörkunum, sem 4. gr. frumvarpsins kveður á um
varðandi þessa fjárfestingu.
Sama gildir um 8. gr. frumvarps til laga um breytingu á lagaákvæðum, er
varða fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri o.fl., sem kveður á um
breytingu á lögum um eignarrétt og afnotarétt fasteigna nr. 19, 6. apríl
1966.
Jafnframt skorar Búnaðarþing á ríkisstjórn og Alþingi að gera skilyrðis-
laust þann fyrirvara í viðræðum EB og EFTA ríkjanna um Evrópska
efnahagssvæðið, hvað varðar fjárfestingar yfir landamæri, að heimild til
fjárfestinga erlendra aðila í fasteignum gangi ekki lengra en kveðið er á um í
framangreindum frumvörpum.
Mál nr. 23 - annar hluti.
Nefndarálit milliþinganefndar til að endurskoðafélagskerfi landbúnaðarins.
Málið afgreitt með eftirfarandi ályktun, sem samþykkt var með 18 atkvæð-
um gegn tveimur:
Búnaðarþing vill undirstrika nauðsyn þess, að sem nánust samvinna og
upplýsingatengsl séu milli þeirra aðila, sem móta framleiðslustefnu og
framkvæmd hennar annars vegar og leiðbeiningaþjónustu og hvers konar
faglega ráðgjöf hins vegar.
Því tekur Búnaðarþing undir þær hugmyndir, sem koma fram í áliti
milliþinganefndar til endurskoðunar á félagskerfi landbúnaðarins, að full-
trúar frá stjórn Búnaðarfélags fslands fái sæti í Framleiðsluráði landbúnað-
arins og Framieiðsluráð eigi fulltrúa á Búnaðarþingi. Búnaðarþing felur
stjórn Búnaðarfélags íslands að óska viðræðna við Stéttarsamband bænda
og Framleiðsluráð landbúnaðarins um frekari útfærslu þessara hugmynda
og í framhaldi af því að leita eftir þeim lagabreytingum, sem nauðsynlegar
reynast, til að málið megi ná fram að ganga.
Þá skal sérstaklega taka til athugunar möguleika á að breyta skipan
Búnaðarþings og Framleiðsluráðs á þann veg, að ekki verði um heildar-
fjölgun fulltrúa að ræða.
182