Búnaðarrit - 01.01.1991, Page 212
Ætla má, að rannsóknir og tilraunir í þágu landbúnaðarins yrðu hagnýtari
og skiluðu landbúnaðinum meiri hagnaði, ef sérfræðingar á hinum ýmsu
sviðum landbúnaðarins væru í nánari snertingu við vandamálin en nú er.
Mjög góð reynsla er af starfsemi landshlutadeilda Veiðimálastofnunar.
Fleira mætti nefna, sem rennir stoðum undir flutning landbúnaðarstofn-
ana frá Reykjavík út á land. Má þar nefna samþykkt aðalfundar Stéttarsam-
bands bænda árið 1989 um flutning á höfuðstöðvum þess frá Reykjavík.
Oft er til þess vitnað í umræðu um landbúnaðarmál og stöðu landbúnað-
arins, að sókn sé bezta vörnin.
Ályktun þessi er sett fram í þeim anda og er nokkur prófsteinn á, hver
hugur fylgir máli, þegar á reynir.
Jón Gíslason gerði þá grein fyrir atkvæði sínu, að hann kvaðst fylgja
ályktuninni, en vildi, að Áburðarverksmiðja ríkisins væri með á skránni.
Páll Sigurjónsson gerði grein fyrir atkvæði sínu með sama hætti og Jón
Gíslason.
Mál nr. 26
Erindi Búnaðarsambands Austurlands um stofnun þróunardeildar í land-
búnaðarrannsóknum á Austurlandi.
Málið afgreitt með eftirfarandi ályktun, sem samþykkt var með 23 sam-
hljóða atkvæðum:
Búnaðarþing átelur, að starfsemi tilraunastöðvanna á Skriðuklaustri og
Reykhólum skuli þrátt fyrir aðvaranir Búnaðarþings vera hætt án þess, að
stofnað sé til þróunar- og rannsóknaverkefna á Austurlandi og Vestfjörðum
til að styrkja búskap og búsetu í þessum landshlutum.
Þingið lýsir eindregnum stuðningi við stofnun þróunardeildar á Austur-
landi með aðild Búnaðarsambands Austurlands og Rannsóknastofnunar
landbúnaðarins. Búnaðarþing felur stjórn Búnaðarfélags Islands að
hlutast til um við hlutaðeigandi stjórnvöld, að nauðsynlegar fjárveitingar
fáist til þessarar starfsemi.
Mál nr. 27
Erindi Jóseps Rósinkarssonar og Brynjólfs Sœmundssonar um breytingar á
reglugerð nr. 579 frá 24. nóv. 1989 um búfjármörk, markaskrár og
takmörkun á sammerkingum búfjár.
Málið afgreitt með eftirfarandi ályktun, sem samþykkt var með 24 sam-
hljóða atkvæðum:
Búnaðarþing 1991 beinir því til landbúnaðarráðuneytis, að eftirtaldar
breytingar varðandi frostmerkingar stórgripa verði gerðar á reglugerð nr.
186