Búnaðarrit - 01.01.1991, Blaðsíða 220
Mál nr. 37
Erindi Egils Bjarnasonar og Ágústar Gíslasonar um málefni loðdýrarcektar.
Málið afgreitt með eftirfarandi ályktun, sem samþykkt var með 24 sam-
hljóða atkvæðum:
Búnaðarþing vekur athygli á erfiðri stöðu loðdýraræktarinnar. Því skorar
þingið á stjórnir Búnaðarfélags íslands og Stéttarsambands bænda, að þær
beiti sér af alefli fyrir að fá rekstrarstöðu greinarinnar lagfærða, þannig að
hún fái notið þess bata, sem nú virðist í sjónmáli.
Því bendir þingið á eftirfarandi:
a) tryggja verður jöfnunargjald á fóðurframleiðslu næsta árs.
b) leita þarf allra möguleika á hagkvæmari rekstrar- eða afurðalánum.
c) létta þarf fjármagnskostnaði af greininni.
d) treysta þarf stöðu fóðurstöðva.
Búnaðarþing leggur áherzlu á, að aðgerðum verði hraðað, svo sem
kostur er.
GREINARGERÐ:
Með tilliti til þess samdráttar sauðfjárframleiðslu, sem virðist fram undan
og þröngum atvinnumöguleikum í sveitum, þá er það gífurlegt hagsmuna-
mál einstakra byggðarlaga, að loðdýraræktin haldi velli og reynist Iífvæn-
leg.
Nú er hvort tveggjastaðreynd, að verulega hefuraukizt sala minkaskinna
og verð hækkað nokkuð.
Auk þess vísa spár færustu markaðssérfræðinga á verulega hækkandi
verð á næstu misserum.
Því skal á það bent, að loðdýrarækt getur treyst byggð í sveitum landsins,
skapist henni rekstargrundvöllur.
Mál nr. 38
Erindi Óskars ísfelds Sigurðssonar um kynbœtur á bleikju.
Málið afgreitt með eftirfarandi ályktun, sem samþykkt var með 25 sam-
hljóða atkvæðum:
Búnaðarþing hefur hvað eftir annað undanfarin ár stutt tillögur um, að
hafnar verði kynbætureldisfiska, enda brýn nauðsyn, ef atvinnugreinin á aö
geta þrifizt hérlendis.
Nú hefur verið hafizt handa af hálfu stjórnvalda, og er ákveðið að hefja
kynbætur á laxi í Höfnum og Kollafirði.
Enn fremur hefur landbúnaðarráðuneytið alveg nýverið ákveðið, að efnt
verði til kynbótastöðvar fyrir bleikju, sem hafi aðalaðsetur á Hólum í
Hjaltadal. Er áformað, að Hólaskóli, Hólalax hl'., Veiðimálastofnun og
194