Búnaðarrit - 01.01.1991, Page 222
Mál nr. 41
Erindi Jóns Gíslasonar um ráðningu sérmenntaðs manns á sviði bútækni og
véla, sem notaðar eru í íslenzkum landbúnaði.
Málið afgreitt með eftirfarandi ályktun, sem samþykkt var með 20 sam-
hljóða atkvæðum:
Búnaðarþing leggur áherzlu á, að auknar verði leiðbeiningar um notkun
véla og véltækni í íslenzkum landbúnaði.
Leiðbeiningarnar verði í nánum tengslum við Bútæknideild Rannsókna-
stofnunar landbúnaðarins á Hvanneyri.
Sérstaklega er bent á þörf fyrir leiðbeiningar varðandi tækni við fóðuröfl-
un.
Mál nr. 42
Erindi Eysteins G. Gíslasonar og Ágústar Gíslasonar varðandi skort á
dýralæknum í héruðum.
Málið afgreitt með eftirfarandi ályktun, sem samþykkt var með 24 sam-
hljóða atkvæðum:
Búnaðarþing vekur athygli á vandkvæðum bænda, sem búa í héruðum,
þar sem enginn dýralæknir er við störf.
Er hér með skorað á landbúnaðarráðherra og yfirdýralækni að kanna,
hvort hægt sé að bæta hér úr, t.d. með því að fá dýralækna annars staðar að
til að heimsækja þessi héruð með vissu millibili.
Ljóst er þó, að slíkt getur ekki orðið nema ófullkomin þjónusta.
Mál nr. 43
Erindi jarðræktarnefndar um framkvæmd jarðræktarlaga.
Málið afgreitt með eftirfarandi ályktun, sem samþykkt var með 24 sam-
hljóða atkvæðum:
Búnaðarþing ályktar eftirfarandi um framkvæmd jarðræktarlaga.
Við setningu jarðræktarlaga 1989 varð samkomulag um afgreiðslu
málsins eftir að Búnaðarþing (aukaþingið) fjallaði um það, og eftir fund
fulltrúa Búnaðarþings með landbúnaðarnefndum Alþingis.
Meðal annars byggðist það á eftirfarandi:
1. Greiðslur jarðabótaframlaga yrðu ekki bundnar skilyrðum af fjárveit-
ingum á fjárlögum framkvæmdaárið. Þess í stað var tekin upp verð-
trygging á framlagi til jarðabóta frá 1. nóvember á úttektarári.
2. Framlög til framkvæmda í túnrækt og framræslu, sem í frumvarpi
landbúnaðarráðherra voru háðar margs konar skilyrðum og ákvörðun
landbúnaðarráðherra, skyldu veitt með sama hætti og gert var með
196