Morgunn - 01.06.1921, Blaðsíða 89
MORGUNN
83
þessir tímav Béu alvarlegir, fá raenn sarat tómstundir til
þess að haga sér eins og fiflc.
»Kirkjan lætur ekki ginna sig með stóryrðum, og hún
lætur engan hrekja, sig út í skot. En þó að kirkjan láti
ekki ginnast, þá er jafnan hætt við þvi, að hæstvirtur al-
menningur, sem ekkert botnar í málinu, láti leika á sig«.
>Tilraunir sálarrannsóknanna*, segir lektorinn enn-
fremur, »heyra til hinu skuggalega og rangsnúna sviði
mannsálarinnar«. »öll þessi Jaúi eru því afar-Óholl«. Og
hann minnir á, að bann Móse gildi enn: »Þú skalt ekki
leita frétta af framliðnum*.
En að lokurn er ekki Ijóst, hvað þessi fyrirmæli Móso
koma í raun og veru málinu við. Því að lektorinn held-
ur þvi fram, að hér sé alls ekki um neina framliðna rnenn
að tefla — þetta sé ekkert annað en »öfl manneðlisins*,
»heilsuleysis-öfl« nefnir hann þau.
»Getur í raun og veru«, segir hann i niðurlagi rit-
gjörðarinnar, »nokkur maður, sem minnist elskaðs fram-
liðins manns með lotningu, hugsað sér það í alvöru, að
hann eða hún sé nú að fást við að lyfta borðfótum, leika
á fortepíano eða fleygja vatnskálum um gólfið? Eða að
þeir svari heimskulegum og ótímabærum spurningum? . .
Og framar öllu öðru er ástæða til að kalda því fast
fram, að ekkert af þessu kemur kristindómi neitt við.
Síðan Jesús talaði og kendi, hefir veröldin fengið að vita
það, að kjarninn í öllum trúarbrögðum er fyrirgefning
syndanna. Og raunhæfi mælikvarðinn á öll trúarbrögð
er nú sá, hvort þau séu fær um að afla sálunni fyrirgefn-
ingar fyrir alla synd, erfðasynd og þá synd, er maðurinn
hefir Bjálfur á sig lagt, braðræðissynd og ásetningssynd
En í þessum hoppandi borðum, glainrandi bjöllum og ringl-
uðu orðum er engin syndafyrirgefning, enginn friður, ekk-
ert annað en sí-æsandi friðleysi, og endalaus leikaraskap-
ur, sem er gersamlega gagnalaus«.
Úl’ því að eg fór að láta ykkur heyra þessar glepsur
Úr ritgjörðum dönsku prestanna, virðist mér vel til fundið,
að við hugleiðum ummæli þeirra að einhverju leyti, og
það því fremur sem megnið af þessum mótbárum er vitan-
lega á sveimi hér og þar um þetta land, og ekki sízt hér
í Reykjavík.
6*