Morgunn - 01.06.1921, Blaðsíða 96
90
MORGUNN
iskri kristni nú fyrst einhverja hugmynd um annað líf.
.Hún hefir eiginlega enga hugmynd gert sér um það; alt
áhrærandi það hefir lent í þoku og óverulegu hjali. Þekk-
ing spíritismana á öðru lífi er farin að streyma inn í kirkj-
urnar, oft og tiðum án þess að þær viti nokkuð af því,
svo að nú heyra menn stundum andstæðinga spíritismans
tala um annað líf, eins og þeir væru útfarnir spíritistar.
Hvaðan haldið þið, að biskupinn í London hafi þá speki,
sem hann lét uppi á prédikunarstól fyrir fáeinum árum,
að eftir andlátið séu mennirnir gersamlega eins og þeir
voru á undan því? Eg heyrði í haust íslenzkan prest,
sem var að prédika móti spíritismanum, segja nákvæmlega
þetta sama í stólræðu Hvaðan hafa þeir þetta? Úr ritn-
ingunni? Nei, hún segir ekkert um þetta. Úr gömlum
kenningum kirkjunnar? Nei. Frá sinu eigin hyggjuviti?
Nei. Til þess að komast að slikri ályktun, verða menn
að hafa öðlast einhverja þekkingu á þeim líkama, sem
maðurinn notar eftir andlátið. Frá spíritismanufn hafa
þeir fengið þetta — og virðast ekki hafa hugmynd um það.
Vegna þeirrar þekkingar, sem fengist hefir áöðru lífi,
sjá allir menn, sem nokkurt skyn bera á málið, hvílik
fjaistæða það er, sem þessi prestur er með, að telja spíri-
tismanum það til áfellis, að liann sýni það, að framliðnir
menn séu »að fást við hinar lítilvægu sorgir og fátæk-
legu áhyggjur mannanna«. Hvernig ætti þessu að vera
annan veg farið, ef það er rétt, sem Lundúna-biskupinn
fullyiðir, að mennirnir séu óbreyttir eftir andlátið. Hvern-
ig ætti á8trík móðir að líta smáum augum á það, sem
gengur að barninu hennar, ef hún er alveg óbreytt?
Er annars ekki þetta eitt af hinum mörgu dæmum
þess, hve hjal kirkjunnar um framliðna menn er oft fjarri
öllum sanni og í raun og veru óþolandi? Þessi prestur
smánar spíritismann fyrir það að hann sýnir, að fram-
liðnir menn taka þátt í kjörum okkar. Eftir hans kenn
ingu eigum «við að hugsa okkur þá hátt hafna yfir það.
En Jesús frá Nazaret hélt þvi að okkur, að sjálfur drott-