Morgunn - 01.12.1931, Blaðsíða 10
136
MORGUNN
Það kunna að vera í þeim gróðrarfræ, sem koma upp á
nýju mannlífsvori. En ef svo færi, þá skilst mér sem eng-
um mundi í alvöru koma til hugar að eigna það vor áhrif-
um kirkjunnar, eins og nú horfir við. Með því er ekki sagt,
að kirkjan gæti ekki lagt þar til mikilsverðan skerf, ef hún
næði tökum á að beita sér. Eg held, eins og Oliver Lodge,
að hún geti verið »máttugt vopn til þess að vinna sigur
á hinu illa og stofnsetja það, sem gott er«. Það eru alt
önnur öfl starfandi nú meðal mannkynsins, sem vekja þser
vonir — þar á meðal spíritisminn, sem biskupinum finst
svo fátt um. Og ef svo kynni að fara, að þessari hreyfing
auðnaðist að eiga sinn þátt í komu betri tíma, þá verður
naumast sagt með réttu, að þeir menn hafi eytt timanum
illa, sem með einhverjum hætti hafa sint henni.
Eg kem þá að þeim ummælum biskupsins, að þó að
sú vitneskja, sem menn telja sig hafa fengið frá öðrum
heimi, væri veruleg, þá sé hún svo ómerkileg, að hún sé
einskis virði. Það vill svo til, að þeirri mótbáru er að nokk-
uru svarað í þessari bók, sem eg er að minnast á. Maður-
inn, sem svarar henni, heitir Robert Blatchford, og er einn
af bezt þektu mönnum á Englandi. Eg hefi séð því haldið
fram, að hann muni hafa flesta Iesendur allra manna, sem
nú skrifa á enska tungu. Hann er nú orðinn nokkuð gam-
all maður, og hefir lengst æfinnar verið trúlaus á annað
líf. Sannfæringuna um það fékk hann við það, að framliðin
kona hans sannaði honum framhaldslíf sitt, með óyggjandi
rökum, að þvi er honum finst. Honum farast m. a. svo orð
i ritgjörðinni, sem hann leggur til þessarar bókar:
»Gerum ráð fyrir að nokkuð margir stjörnufræðingar
og aðrir vísindamenn hefðu fengið glampaskeyti eða þráð-
laust skeyti frá Marz, þegar sú reikistjarna var næst okk-
ur. Mundi nokkur hafa talið það ómerkilegt, þó að skeytið
hefði ekki verið annað en »halló!«, og þó að það hefði
verið ólæsilegt? Hvað? Skeyti frá Marz?
»Og ef það hefði verið mikilvægt að fá skeyti frá ann-
ari reikistjörnu, hvernig sem það skeyti hefði verið, gæti