Morgunn - 01.12.1931, Blaðsíða 47
MOKGUNN
173
gerst á líkamningafundum, en þar viröast þau gerð í
þeim tilgangi, að ná sem beztum árangri við líkamninga-
tilraunirnar. Þar er verið að byggja upp nýja líkami,
soga útfrymið úr líkama miðilsins, eftir því, sem þörf
er á og hann getur látið í té. Þessi myndbreyting miðils-
líkamans á líkamningafundum sýnist geta gerst með
þrennu móti:
1. Allur líkami miðilsins rýrnar, minkar jafnvel um
helming.
2. ÍEinstakir líkamshlutar verða óskynjanlegir, eins
og við handleggshvarfið, og
3. Allur líkami miðilsins verður óskynjanlegur.
Eg ætla að segja ykkur dæmi upp á hvert af þess-
um undrum.
Einn af líkamningamiðlunum ensku var Miss Sho-
ivers, þá 17 ára gömul stúlka, og var ofurstadóttir. Flo-
rence Marryat segir frá henni í bók sinni: „There is No
Death“ (Enginn dauði er til). Á líkamningafundi býður
líkamningurinn F. M. með sér inn í byrgið, til að forvitn-
ast um, hvort miðillinn sé þar ekki ennþá. Hún segir
svo frá:
„Eg varð dauðhrædd fyrst þegar eg sá hana. Yarygð-
ar vegna og til þess að örðugar veitti að skifta á henni
fötum, var hún klædd í þrönga, svarta flauelskápu, sem
náði upp í háls, og var fest að henni á bakinu, en til
fótanna var hún í háum strigastígvélum, með óteljandi
hnöppum, en nú leit hún út fyrir að hafa rýrnað til
hálfs, og kápan hékk utan á henni, eins og hún kæmi
■ekki við líkamann. Handleggina sá eg ekki, en með því
að fara með hendurnar upp í ermarnar, fann eg þá,
en þeir voru eins og á litlu barni og fingurnir voru þar
sem olnboginn var áður. Sama var að segja um fæturna,
tærnar náðu aðeins fram í miðjan skóinn.
,,Hún leit út eins og þornað lík af fjögra til sex ára
barni. Líkamningurinn sagði, að eg skyldi þreifa á and-
litinu á henni. Ennið var þurt og gróft viðkomu, en brenn-