Morgunn - 01.12.1931, Blaðsíða 99
M 0 R G U N N
225
niður langa aðalgötu. Hann fylgdi þeim eftir með hugar-
sjón sinni og sá þau ganga inn í mjóan húsagarð. Hann
gætti að og las nafnið á garðinum. Það var brennivinsbúð
nálægt þessum húsagarði og blasti við ljós. Þegar hann
leit út um glugga, sá hann að visarnir stóðu á 12,40, þeim
tíma, er veitingahúsum var lokað á kvöldin.
Þegar hann gáði að (í skygnisýninni), sá hann mann-
inn og konuna fara inn í dimt horn á garðinum. Konan
var hálfdrukkin, en maðurinn alls gáður. Hann var í dökk-
um fötum úr skozku efni með ljósan yfirfrakka á hand-
leggnum, og ljósblá augu hans glömpuðu i geislum lampa-
ljóssins, sem dauflega lýsti upp þetta skúmaskot. Maðurinn
lagði aðra höndina á munn konunnar, auðsjáaulega til þess
að hindra það að hún æpti, dró hníf upp úr vasa innan á
vestinu og skar hana á háls. Blóðið spýttist á skyrtubrjóst
hans. Hann skar siðan í líkama hennar ýmsa djúpa skurði
með vísindalegri leikni, þerraði gætilega hníf sinn á klæð-
um konunnar, stakk honum í skeiðar og fór í hinn ljósa
yfirfrakka, hnepti honum upp úr, eins og til að hylja skyrtu-
brjóstið og gekk í hægðum burtu frá morðstaðnum.
Herra Lees varð svo mikið um þessa spá-
y”sönnyniS mannlegu sÝn a morði, sem mundi verða
framið, að hann fór þegar í stað til Scot-
land Yard* og sagði leynilögreglunni alla söguna. Lög-
regluþjónarnir héldu helzt að hann væri eitthvað vitskert-
ur, en til þess að gera honum til geðs, ritaði þjónn sá, er
starfi gegndi, nafnið á staðnum, þar sem herra Lees sagði,
að glæpurinn yrði framinn, og einnig tímann, 12,40 um
nótt, er kviðristarinn og fórnardýr hans mundu fara inn í
húsagarðinn.
Klukkan 12,30 næsta kvöld gekk kona inn á veitinga-
hús nálægt þessum húsagarði. Hún var mjög drukkin og
veitingamaðurinn neitaði að veita henni meira. Hún fór út
úr húsinu blótandi og með öðru illu orðbragði. Annað
* Hin nafnfræga lögreglustöð í Lundúnum.
15