Morgunn - 01.12.1931, Blaðsíða 112
238
MORGUNN
Spíritisminn á Bretlandi hefír á nokkurum
“Urig s'ðustu mánuðum fengið liðsmann svo öfl-
ugan, að fádæmum sætir. Liðsmaðurinn er
veikluleg, feimin, lágróma og fámálug kona, og heitir Mrs.
Meurig Morris. Hún fer í sambandsástand, og þegar hún
er í því ástandi, er prédikað gegnum hana. Þá tekur útlit
hennar gagngerðum breytingum; hún verður karlmannleg
og valdsmannsleg og málrómurinn er djúp karlmannsrödd,
og svo mikil fylling í þeirri rödd, að glögt heyrist hvert
orð um stærstu samkomusali Englands. En auk þess þykir
efni þessara prédikana vera með afbrigðum gáfulegt, og
búningurinn eins.
Leikhusst on 1 London, Laurence Cowen
Laurence Cowen. _ r . , c. . , , c
að nafm, hefir gert þessa konu fræga.
Fyrstu kynni hans af henni atvikuðust svo, að hann kom
inn á spíritistasamkomu og hlustaði á þessa konu. Þegar
hann kom á samkomuna, hafði hann mestu fyrirlitning fyrir
því, sem þarna var að gerast og fyrir þeim fáráðlingum,
sem fyndist mikið til um það. En hann fór út af samkom-
unni sem alsannfærður spíritisti. Fyrst hélt hann, að konan
hefði þá ummyndunar- og leikaragáfu, sem hann hefði
aldrei rekið sig á á neinu leikhúsi, og hann fór þegar að
hugsa um það að ná i hana að leikhúsi sínu og sjá henni
fyrir leikriti, sem svo væri samið, að þessi hæfileiki henn-
ar gæti notið sin að fullu. En eftir því, sem hann hlustaði
lengur á það, sem konan var að segja, varð honum það
ljósaia, að hér væri um annað og meira að tefla — að sú
vitsmunavera, sem í raun og veru flytti þessa ræðu, væri
frá öðrum heimi, en væri alls ekki þessi kona. í ræðunni
væri svo mikill lærdómur, rökfesta og speki, að auðsætt
væri, að þessi kona setti ekki slíkt saman. Hann tók þá að
rannsaka málið af miklu kappi.
Þar á eftir fékk hann Mrs. Morris til þess að
Aðstre>mi að ^ hverju sunnudagskvöldi i leikhúsi
predikununum. 1 J ö
sínu, og hefir nú trygt það, að þeim samkom-
um verði haldið áfram eftirleiðis. Alt af er þar húsfyllir, og
ýmsir mjög nafnkendir menn skiftast á um að stjórna þess-