Morgunn


Morgunn - 01.12.1937, Side 48

Morgunn - 01.12.1937, Side 48
174 MORGUNN að bíða ósigur, þrátt fyrir eindregnar tilraunir sálar og líkama til þess að halda samvinnunni áfram enn um hríð. Sál og líkami virtust hegða sér þessi augnablik eins og tveir innilega sameinaðir og nátengdir vinir, er ekki mættu hugsa til þess að slíta samvistum, en hefðu það þó á tilfinningunni, að þeir yrðu að skilja og reyndu því að fresta skilnaðaraugnablikinu í lengstu lög. Það gat auðvitað ekki hjá því farið, að þessi togstreita eða barátta, er sýndist fara fram í líffærakerfi efnislík- amans setti svip sinn og einkenni á ásjónu og yfirbragð hinnar deyjandi konu. Dauðastríðið sýndist því óvenju átakanlegt og þjáningafult frá sjónarmiði þeirra, er dvöldu við banasæng hennar, en þeir sáu aðeins þján- inga- og sársaukadrættina, kvíðann og óttann, er virtist mega lesa út úr svipbrigðunum í andliti hennar. En mér var þegar gert það ljóst, að þessi ytri líkamlegu einkenni væru hvorki sprottin af vituðum þjáningum eða sálrænu vansæluástandi hinnar deyjandi konu, heldur væri hár aðeins að ræða um ósjálfráða starfsemi líkamslíffær- anna, sem orsakaðist af því að sálin væri að losa sig úr tengslum við efnið, líffæri þau, er hún fram að þessu hafði notað sem starfstæki. Ég tók nú eftir því, að höfuð konunnar hjúpaðist alt í einu björtu ljósbliki; samtímis var eins og höfuðskel hennar hefði verið opnuð, eða leyst upp með einhverjum dularfullum hætti; ég sá heilann mjög greinilega og nokkur augnablik var mér gert kleift að fylgjast með starfsemi þeirri, er þar fór fram, jafnvel í instu fylgsn- um hans. En skyndilega hættu heilasellurnar störfum. Það var engu líkara en ósegjanlega margbrotin vél hefði verið stöðvuð, en aðeins eitt augnablik. Því nær samstundis hófu þær starf að nýju, en nú var starf þeirra alt annars eðlis. Þá höfðu þær verið orkulindir og aflgjafar líffæranna, sent þeim mátt og megin, en nú virtist starfsemi þeirra eingöngu beint að því að end- urheimta og draga til sín lífsafl það, er fram að þessu J
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.